Mánudagur 03. nóvember 2008 / 23:27 / Því Innng'er kominn heim :)
Best að upplýsa að þetta tryllitæki sem Ingi fjárfesti í, útí Noregi er 50" plasma sjónvarp sem er akkurat núna á leiðinni á Noregsmið með Aðalsteini Jónssyni SU 11 en kemur til landsins eftir ca 2 vikur (Ingi telur niður dagana). Annars er lífið ljúft í Vogunum. Við erum að vinna í því að koma okkur fyrir. Ingi setti saman kommóðuna mína í gær (ég er víst í lífstíðar-banni í samsetningu á hlutum) og svo hillu í kvöld. Forstofuherbergið er án efa mest notaða herbergið núna, en þar eigum við víst að vera að læra ;) Hera er farin frá mér á vit nýrra ævintýra í Vík í Mýrdal. Ég sakna hennar alveg svakalega! Útivistarfélagi minn horfinn og Ingi kann varla eina einustu skipun! Búin að reyna að klikka hann inn í hinu ýmsu húsverk en gengur misvel ;) Hann hlýðir best "sestu" og "vertu kyrr" hehehe.
Jæja læt þetta nægja í bili. Þurfum að vakna tímanlega á morgun enda á Ingi að mæta í flug í fyrramálið. Ætlar að fljúga austur og ganga frá okkar málum þar - svo sækja gullmolana okkar tvo og er áætluð lending aftur í Reykjavík á fimmtudag/föstudag. Hlakka til að fá strákana mína alla aftur til mín :)
Enda þetta á nokkrum myndum úr íbúðinni - herbergin og þvottahúsið voru ómyndatökuhæf hehehe
Smellið á
Hera steinsofandi í bælinu sínu
Ingi, a.k.a. Rooney/Joe Boxer að tölvunördast í forstofuherberginu
Og þarna er hásæti drottningarinnar hehehe
Fallega forstofan mín
Bílskúrinn er til ýmissa hluta nytsamlegur ;)
Eldhús/Stofa
Stofa/Eldhús
Heimilistækin eru nú ekki beint af verri endanum! Ferrari-hannað dótarí eitthvað sem er allt með snertiskjá - maður þarf masterspróf á ofninn, BA-próf á gufugleypinn og stúdentspróf á spanhelluborðið :)
Gerberann sem gefur lífinu lit! :)
---
ALLIR AÐ KOMA Í HEIMSÓKN TAKK! :D
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Guðrún:
Hanna, sjese hvað íbúðin þín er flott.... geggjuð...! Ertu að legja eða keyptuð þið? Öfundast ekkert smá út í allt þetta pláss sem er þarna hjá þér... hehe
04.11.08 00:07
Ólöf Lilja:
Ojj píkan þín!! ég vill líka fá klakavél!!
04.11.08 09:19
Inga Rut:
æðisleg nýja íbúðin ykkar :D til hamingju með hana :D
aldrei að vita nema maður kíkki á ykkur um helgina, ef tími gefst, er dáltið þétt setið.. en reynum samt ;)
04.11.08 11:11
mér finnst samt svefnherbergið flottast! ertu nokkuð búin að mála yfir litinn? :P hehe.. annað finnst mér eiginlega ekkert spes! :D
jú bílskúrinn! :D
04.11.08 21:06
Geggjuð íbúð! Hlakka til að fá að sjá hana einhvern tímann:) Ég á alveg eins skrifborðsstól og þú;)
06.11.08 11:49
já guð hvað ég gæfi mikið fyrir plássið.. eruði bissý um helgina??? hvað eru margir búnir að bóka sig í heimsókn?? verð í bandi
06.11.08 13:51
Kristjana:
Já ég er sko til í að koma í heimsókn. Viltu innflutningsgjöf (lítinn sætan hvolp)?
07.11.08 14:09



