Mánudagur 17. nóvember 2008 / 15:11 / Lífið í lyngdalnum
Hér í Vogunum gengur lífið sinn vanagang. Ég mæti í skólann.. eða ekki. Sit heima og læri. Fer út með hundinn. Sinni manninum mínum sem er sveittur yfir bókfærsluverkefni núna og hugsa til strákanna sem eru farnir til mömmu sinnar á Reyðarfirði. Akkurat núna eru þeir líklegast að háma í sig góðgæti í "drekkutíma" á leikskólanum. Veðrið er alveg dásamlegt og var ég að hugsa um að fara út að hjóla með dýrið áður en myrkrið skellur á. Já þó veturinn sé ekki kominn af alvöru með snjó og hálku - er myrkrið skollið á mun fyrr en maður áætlar! Það þýðir bara eitt: jólin eru aaalveg að fara að koma!
Við Ingi höfum mikið rætt um jólaseríur og jólaseríu kaup. Ég vil helst halda skrautinu í hófi. Hér er eitt hús búið að skreyta alveg svakalega, jólaseríur í öllum gluggum, rauðar í þokkabót og ekki beint snyrtilega upp settar - hver hefur sinn smekk en ég vil sýna hógværð í þessu sem og öðru! :)
Ingi sá voðalega fallega bláa seríu í Garðheimum og vildi endilega fjárfesta í henni. Ég var ekki alveg á sömu blaðsíðu.. því hvað er jólalegt við blátt? Æji ég veit ekki, ég er heldur ekki til í rauðan lit - því það finnst mér vera svo gleðikonulegt..
Næsta helgi er virkilega spennandi. Þá munum við gista á Hótel Sögu föstudags- og laugardagsnóttina. Föstudagurinn byrjar svo með Vísindaferð kl 18 í NOVA þar sem Ingi fær að fljóta með - og á laugardagskvöld er jólahlaðborð á Hótel Sögu með áhöfninni af Aðalsteini Jónssyni. Það verður stuð! Versta er bara að ég þarf að finna mér aðra Guðrúnu Veigu á því hlaðborði... það komast nú ekki allar með tærnar þar sem hún hefur hælana skal ég segja ykkur! Sunnudagsmorgun þarf ég hinsvegar að taka snemma og mæta á skemmtilegt Dráttarhundanámskeið/sleðahundanámskeið. Þar verður okkur kennt að kenna hundum að draga sleða/hjól/kerrur/vagna/snjóþotur.. beygja til hægri/vinstri, stoppa ofl. Virkilega spennandi námskeið og vonandi get ég nýtt mér þetta eitthvað með litla dýrið mitt. Annars fær maður bara einhvern risa lánaðann í verkið! :)
Dýrið mun að öllum líkindum fara í pössun hérna í Vogunum. Vona það allavega því honum líður virkilega vel í pössun hjá Olgu vinkonu og hundunum hennar tveimur, kettinum, páfagaukunum, froskunum og fiskunum! Heimilislífið er jú frekar skrautlegt þar! Æðislegt að koma í heimsókn og fylgjast með öllum dýraskaranum, þó mér hafi nú ekki verið alveg sama um þessa páfagauka flögrandi útum allt!
Skelli hérna inn þremur myndum af Villanum
"Heyyy geðveikt kúl Ringneck!"
"Vó! Rólegur félagi!"
Við Villi steinsofandi í sófanum...
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Edda Bj.:
Rosalega er ég sammála þér með rauðu og bláu seríurnar!
18.11.08 10:25
mamma:
Ég er sko alveg sammála með rauðu og bláu seríurnar. og lítið er betra en mikið.
koss og knús mamma
18.11.08 11:29
Jóhanna E.:
Jiiii hvað þið eruð sæt þarna í sófanum :) mússímússí
18.11.08 16:21
Glærar seríur standa alltaf fyrir sínu;)
18.11.08 19:36
baddy:
já ég er sammála með hófsemina en mér skilst að það sé oft veglega skreytt á mínu heimili - og þá ekki af mér sjálfri heldur mágkonu minni, en það er bara stemmning. jólagleðin er komin í mitt hús og minn huga og ef ég ætti mína íbúð og engin kreppa væri í landinu þá myndi ég nú alveg örugglega standa mig vel í skreytingunum hehehe en hófsemin er dyggð:)
..ekkert smá krúttleg mynd af ykkur "mæðginunum" þarna:)
20.11.08 05:06



