Miðvikudagur 19. nóvember 2008 / 23:27 / Jólagjafalisti

Ég gerðist svo frökk og dónaleg að setja upp jólagjafalista fyrir árið 2008. Hann er hér fyrir neðan fallegu sjálfsmyndina. Ég ætla að reyna að bæta í hann jafn óðum og mér dettur eitthvað sniðugt í hug - en þetta verður jafnframt svona "mig vantar/mig langar í.." listi fyrir sjálfa mig.
Langaði líka að setja "Snjógalli á Villa" á listann en kunni ekki við það hehehe.;)
Annars er ég búin að fjárfesta í 2 jólagjöfum -. Baddý systir er hinsvegar að verða búin að kaupa jólagjafir handa öllum í heiminum og nokkrum geimverum líka, svo ég tali nú ekki um smákökusortirnar hennar 300 sem vella útúr bílskúrnum í Garðabænum! Svo stolt af sys - hún mætti bara koma oftar í heimsókn og færa mér þá smákökur! Síðast þegar hún kom át hún frá mér allt Celabrat(ion) good times, come on! :) hehehe


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

baddy systir:

já ég gleymdi alveg að senda þig heim með smákökur þegar þú komst í heimsókn um daginn. en það hefði bara verið sóun á kökum þar sem þær hefðu farið beint í gegn hehehe... en þú færð bara kökur næst - held að ég og gréta þurfum að baka aðeins fleiri kattartungukökur, nema ég komi bara til þín og baka hjá þér:) það má alveg athuga það sko - svo gott bekkjarpláss hjá þér:) þú verður bara í bandi ef þú þarft að taka þér pásu frá lærdómnum og þá væri kannski hægt að hræra í eina sort eða svo!

20.11.08 05:01


Aníka:

er baddý leigð út eða? væri alveg til í að vera búin að þessu öllu.. hún myndi alla vega græða helling ef hún færi útí bisness :D hehe..


21.11.08 00:59


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín