Föstudagur 14. nóvember 2008 / 00:02 / Griffon

Þar sem ég er núna stoltur Griffon-eigandi hef ég verið að lesa mér um tegundina á innlendum sem og erlendum síðum. Mér skylst að Villi sé fyrsti Griffon Bruxellois sem kom til landsins, ásamt Robba Griffon Brux.félaga sínum og losnuðu þeir úr einangrun þann 3.nóvember 2006. Ein tík kom til landsins á undan honum en hún var Griffon Petit Brabançon. Gullgæfu-ræktun er ræktandi Villa, en ég er eigandi. Margir hafa verið að spyrja mig út í þennan svk. fóðursamning sem ég og ræktandinn gerum. Hann er í rauninni nokkurnveginn eins og bílasamningur sem þið gerið við Lýsingu eða annað láns-fyrirtæki þegar þið fáið ykkur bíl. Þá er ræktandinn eigandi, en ég er umráðamaður. Ég sé um allan kostnað sem fylgir honum, geri allt með honum sem mér dettur mögulega í hug, þjálfa hann og siða til eftir eigin höfði, en ræktandinn hefur ræktunarréttinn svo að ég má ekki rækta undan honum eða lána hann á aðrar tíkur. Þetta er nokkurnveginn staðlaður ræktunarsamningur, og ekkert smáa letur :)
Aðeins um Griffon (á mannamáli)


Til eru þrjár týpur af Griffon og er Villi Griffon Bruxellois. Hann er því strýhærður. Griffon Belge er einnig strýhærður (eða með svona gróf, millisíð hár) en þeir eru svartir. Griffon Petit Brabançon er silkhærð útgáfa af Griffon, með ekkert skegg! Það besta við Villa er að hann fer lítið sem ekkert úr hárum - og þarf ég aðeins að reyta hann eins mikið og oft og ég nenni. Ég hef nánast á hverju kvöldi setið með hann í fanginu yfir sjónvarpinu og reytt feldinn (þá einfaldlega toga/plokka ég lengstu hárin úr honum! Hann finnur ekkert til og hrýtur oftast nær meðan þetta á sér stað!)
--
Þeir eru afskaplega kröftugir á að líta, með skegg, klesst trýni og risastór augu sem bræða mann auðveldlega. Líkami þeirra er stuttur og frekar kubbslegur, skottið hálfpartinn hringað (uppá bak) eins og íslenskur fjárhundur. Villi er rauður, en Griffon kemur líka í black&tan (eins og Rottweiler) og algjörlega svartur. Þeir eiga að vera frá 2-6kg og 18-20cm upp á herðarkamb (semsagt þá mælir maður ekki uppá hausinn á þeim heldur hæsta punkt - þar sem framfætur enda ef einhver skilur mig hehe)
---
Þeir eru fjörugir hundar, miklir karakterar, kúrudýr og einstaklega heillandi. Þeir eru líka forvitnir og elska alla. Þeir eru mjög góðir með öðrum hundum (Villi er algjör gullmoli, og reyndi aðeins að siða hvolpana á námskeiðinu til - enda eldri og lífsreyndari hehe).
Þeir eru góðir varðhundar, þrátt fyrir að Villi sé nú ekki að standa sig í geltinu. Höfum sárasjaldan heyrt hann gelti, og þá aðallega ef að ég yfirgef herbergið og loka að mér, t.d. í þvottahúsinu. Þeir hafa stundum fengið viðurnefnið "apa-fés" eða "monkey face" - en mér finnst Villi minn nú ekki vera apalegur :)
---
Þeir eru fljótir að komast uppá lagið og þurfa eiganda sem eru ákveðnir og láta ekki vaða yfir sig. Hreyfing er nauðsynleg fyrir þá eins og alla aðra hunda, en hundar sem eru ekki hreyfðir nægilega þróa oft með sér ýmiskonar vandamál sem geta oftar en ekki leitt til þess að hundinum er ekki treystandi, hvorki með börnum né fullorðnum, og stundum jafnvel endar ævisaga hundsins með biti.
---
Enn sem komið er, er ég afskaplega ánægð með hann Villa okkar. Hann var mikið í því að merja fyrstu dagana, en dagurinn í dag er fyrsti dagurinn sem ekkert hefur verið merkt hérna innan dyra. Hundar "merkja" sér semsagt svæði með því að pissa (oftast nær bara nokkrir dropar) á eða yfir ákveðinn hlut. T.d. merki hann fyrst af öllu í kringum klósettið hérna!
Ég ætla þó að hafa varann á og fjárfesta í rakka-bleyju þar sem greyið mitt fær að spræna í dömubindi ef við förum í heimsóknir, sérstaklega þar sem eru/hafa verið hundar. :)
---
Þið sem nenntu að lesa þetta eru vonandi orðin örlítið fróðari um nýja fjölskyldumeðliminn, og vonandi bjóðið þið hann velkominn ef ég skyldi líta við hjá ykkur með hvuttann..
---
heimild: www.gullgaefu.bloggar.is & http://www.dogbreedinfo.com/griffon.htm

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín