Laugardagur 25. október 2008 / 00:43 / Tími breytinga
Í sumar var ég spurð að því af einum unglingnum í vinnu hvað ég væri eiginlega gömul. Krökkunum fannst erfitt að trúa því að manneskja sem væri bara 23 ára hefði gert allt sem ég hef gert.
Þegar ég hugsa útí það, þá hef ég nefninlega gert skrambi margt. Ég hef lítið látið stoppa mig og gengið í gegnum ýmislegt sem hefur ekki drepið mig - heldur styrkt mig.
Í dag er ég stödd á Reyðarfirði. Hér er ég ein (plús Snjólaug) í húsi sem er eiginlega ofvaxin Músarhola "Músarhola-deluxe" eins og við Snjóks köllum pleisið. Fyrir utan húsið stendur riiisastór flutningabíll, sem bíður eftir því að ég fylli hann af dóti og svo verður því keyrt í Voga, Vatnsleysuströnd. Enn eitt skiptið er ég að flytja. Ég segi enn eitt skiptið því að ég hef flutt ansi oft - þó hafa foreldrar mínir aldrei flutt.
16 ára gömul fór ég í Menntaskólann á Akureyri. Ég bjó fyrst í kjallaranum hjá Tinnu&Sævari í Lundarhverfinu. Flutti þaðan í Hríseyjargötuna og stoppaði svo stutt við í Síðuhverfinu. Svo flutti ég heim á Hauganes yfir sumarið, og eftir það til Grenivíkur þar sem ég náði mér í gæja þaðan. Við Þorsteinn keyptum okkur svo íbúð í Hrísalundinum á Akureyri og þar dvöldum við þangað til ég hafði lokið MA. Þá var ferðinni heitið til Californiu þar sem við bjuggum fyrst í Carver Court, Simi Valley - svo í Bonita Drive, Simi Valley og að lokum hjá Dóru&Eric í San Luis Obispo.
Þegar heim var komið flutti ég til Grenivíkur í 6 mánuði, svo á Hauganes í 3vikur þegar uppúr slitnaði hjá okkur Þorsteini. Frá Hauganesi var ferðinni svo heitið til Grímseyjar í 3 mánuði sem var yndislegur og mjög svo gefandi tími. Eyjaskeggjar kvöddu mig svo í september í fyrra þegar ég flutti í Mávahlíðina með Jóa mínum. Úr Mávahlíðinni flutti ég í Grafarholtið í 1 mánuð og svo þaðan til Reyðarfjarðar í Mánagötuna. Úr Mánagötunni flutti ég í Hjálmholtið í Reykjavík og er nú flutt þaðan í æðislega fallega raðhúsíbúð í Vogunum, Vatnsleysuströnd.
Vonandi stoppa ég þar við næstu 2 árin. En maður veit voðalega sjaldan hvert lífið leiðir mann - mig langar nefninlega svolítið að flytja til Ísafjarðar, eða bara eitthvert á Vestfjörðunumí óákveðinn tíma... bara ekki segja Inga frá því ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Helga skilningsríka:
síðuhverfið... var það "okkar" tími......því ef þú hefur gleymt að taka hann fram....þá verð ég gjörsamlega.......skilningsrík því þú bara ert alltaf að flytja....
sakna þín sæta...........ohhh ég var farin að hlakka svo til kvöldstundanna okkar í nóv....en það bíður betri tíma???
your BeGgUs......p.s. ég get ekki hætt að ímynda mér seinsustu "sögu" sem þú sagðir mér... smá hint fyrir þig......fætur upp á hillu....hahahahaha
25.10.08 10:58
Helga skilningsríka:
síðuhverfið... var það "okkar" tími......því ef þú hefur gleymt að taka hann fram....þá verð ég gjörsamlega.......skilningsrík því þú bara ert alltaf að flytja....
sakna þín sæta...........ohhh ég var farin að hlakka svo til kvöldstundanna okkar í nóv....en það bíður betri tíma???
your BeGgUs......p.s. ég get ekki hætt að ímynda mér seinsustu "sögu" sem þú sagðir mér... smá hint fyrir þig......fætur upp á hillu....hahahahaha
25.10.08 11:14
síðuhverfinu? hvenær bjóstu þar?
og ekki gleyma skarðshlíðinni :D nema skarðshlíð sé í síðuhverfi? var það ekki síðast þegar ég vissi ;) heh..
hlakka til að taka Earl-kvöld fljótlega :D
26.10.08 03:04
Þorsteinn Ingi:
þú ert ruuusaaleg... lífsreynslu bolta kempa
28.10.08 17:31



