Laugardagur 25. október 2008 / 00:56 / Móment..

Í kvöld upplifði ég mitt fyrsta "leikskóla-móment".
Þannig er mál með vexti að ég er stödd á Reyðarfirði, og strákarnir hans Inga í heimsókn hjá Steinunni "ömmu" sem er mágkona Inga. Ég fór í heimsókn þangað rétt fyrir 8 og strákarnir afskaplega glaðir að sjá hana Hönnu sína, og ég afskaplega hamingjusöm að hitta þá. Gísli Valgeir (3ja ára) hljóp beint í fangið á mér, horfði svo á mig, sagði ekki "hæ" heldur .."Hanna ..du att þjá dráka! Einn heidir Ragnar, Einn heidir Pabbi og einn heitir Gísli Valgeir!" :)
Þegar ég var búin að sitja hjá þeim í nokkra stund þurfti ég svo að fara aftur heim í "græna húsið" og byrja að pakka niður dótinu okkar. Gísli Valgeir átti afskaplega erfitt með að kveðja mig og þar kemur að því mómenti sem ég talaði um.
Ég vann á leikskóla í 6mánuði og lenti stundum í því að börnin skældu þegar þau komu á morgnanna, og vildu ekki sleppa foreldrunum. Það versta sem að foreldrarnir gerðu var að koma aftur, knúsa barnið meira, hugga það etc því þá esptist það upp í grátnum og erfiðara var að hugga það. Ég átti erfitt með að setja mig í spor foreldris sem ekki gat einfaldlega snúið baki í grátandi barn sitt og labbað út.
Í kvöld grét Gísli svo sárt þegar ég sagði honum að hann gæti ekki gist hjá mér í nótt. Í forstofunni tók ég hann í fangið til að kyssa hann bless og hann ætlaði aldrei að sleppa. Þegar ég lokaði hurðinni grét hann svo sárt og kallaði á eftir mér. "Haaaannnaaa má é koma meeee??"
Ohh hvað það var erfitt að segja bara bless og labba í burtu....


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Jóhanna E.:

æihh krúttið!!

25.10.08 15:46


Hóffa:

Sem betur fer erum við alltaf að læra eitthvað og þú ert engin undantekning með það mín kæra.
Það er þetta með mömmuhjartað...
Ég væri alveg til í að hafa þig ennþá í leikskólanum hjá mér en ég veit að hvað sem þú gerir gerir þú af heilum hug. Enda ættir þú ekki þjá dráka ef þú værir enn hjá mér :)
Gangi þér allt í haginn og takk fyrir falleg orð á blogginu hjá mér :)
KV, hh

26.10.08 22:59


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín