Mánudagur 13. október 2008 / 23:17 / Kröfuhörð..
Ég held ég sé kröfuhörð. Stundum er ég einum of kröfuhörð, stundum bara smá... stundum krefst ég ekki nokkurs hluts. Sumir gera það að verkum að ég krefst meira af þeim en öðrum. Ef ég er t.d. lasin krefst ég þess ósjálfrátt að Baddý systir athugi með mig. Ef ég kem ekki í skólann, krefst ég þess í hljóði að skólafélagar sendi mér sms eða jafnvel hringi til að reka mig á fætur.
Flestar kröfur þær sem ég er með, færi ég ekki í orð. Hinsvegar berjast þær um inn í mér. Ég krefst mikils - en hvernig get ég gert það ef ég segi aldrei hvað flýtur um í hausnum á mér?
Gott dæmi er minn ástkæri Ingi, sem átti sér einskis ills von þegar hann kynntist ungri snót frá Hauganesi. Ljúf og góð var hún í byrjun. Núna er hinsvegar annað komið á daginn...
Ég krefst þess að hann hringi í mig á hverjum degi þegar hann er á sjónum. Hvort sem hann er þreyttur, á frívakt, lasinn eða hreinlega sofandi. Hringja skal hann!
Þegar hann hefur uppfyllt þessa sjúklegu þráhyggju mína - krefst ég þess að hann sendi mér sms af siminn.is þegar hann er að vinna. Bara svona til að minna á sig. Svo krefst ég þess líka að fá ástarjátningu í rafrænu formi amk 1x í viku. Lágmark! Svo væri nú ekki verra ef hann myndi panta blóm og láta senda mér - Það þarf ekkert að gerast oft sko, en væri vissulega mjög ánægjulegt! Mér finnst líka svo gaman að fá blóm, setja í vasa og fegra heimilið mitt um stund.
Ég geri mér samt grein fyrir því (enn sem komið er) að stundum verð ég bara að sætta mig við "I love you" í gegnum símtólið í lok hvers samtals. Að ég verð að slaka á kröfunum, anda inn um nefið og út um munninn... eða var það öfugt??
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.
/ Álit
Jóhanna E.:
GÓÐ Hanna! Við könnumst við svona við görlz ;) ..kannski ekki alveg svona svakalegt en samt.. ;) hahahah :D
13.10.08 23:58
Gams:
Djöfull lifið þið í miklum blekkingarheimi :)
14.10.08 10:48
Mér finnst ekki alltaf rétt að setja kröfur á aðra. Ef þú ert alltaf að krefjast hluta af fólki þá fer það að verða kvöð á því að ÞURFA alltaf að gera eins og kröfurnar segja til um þannig að hlutir verða að tilætlunarsemi en ekki óvæntur atburður til að gleðja aðra - skilurru?.
Ég krefst þess aldrei að Gunnar sendi mér ástarjátningu á hverjum degi og hann hefur aldrei sent mér blóm en ég veit samt að hann elskar mig og þegar ég fæ blómin þá verður það mjög óvænt og ánægjuleg sending.
En ég skal samt alveg huga að þér í veikindum systir kær:)
14.10.08 22:52
Gunni er heldur ekki mörgþúsund sjómilum frá þér systir góð ;)
Skil samt alveg hvað þú ert að fara hehe
14.10.08 23:01
Hahaha- þú ert ágæt sæta mín!
Ég fæ þá vonandi smá prik fyrir að hafa ætlað að vekja þig- þú varst bara svoooo dugleg að vera vöknuð ;o)
Passaðu bara að kæfa ekki hann Inga greyið- svo hann hætti nú ekki við að koma í land ;o)
Sé þig sæta!
15.10.08 09:04
hehe.. ég er hef aðeins færri kröfur en þú á hann Helga minn.. það sem ég fer fram á er að þegar ég kem norður er aðallega:
að ég vil að hann sé nýbúin að ryksuga, hafa eldhúsið þokkalega vel frágengið og skipt um á rúminu því hann á það til að bjóða hundinum uppí til að fylla uppí :D hehe..
mér finnst þetta ekkert ósanngjarnar kröfur..
maður gerir alltaf einhverjar kröfur til fólks, en maður verður held ég bara að meta hversu raunhæfar þær kröfur séu og hvort fólk geti yfir höfuð staðið undir kröfunum.. og ef kröfurnar eru of harðar og fólk höndlar það ekki, verðum við að kilja það aðeins er það ekki?
því ef maður gerði ekki kröfur, væri heimurinn ekkert skemmtilegur! :D heh..
en þetta er orðið ansi langt og örugglega hætt að meika sens, svona miðað við hvenær þetta er skrifað og hversu óheyrilega þreyttur ritillinn er :D
knús á þig kröfuharða!
18.10.08 00:02



