Fimmtudagur 30. október 2008 / 20:45 / Flutt!!

Færsla númer 200 um flutninga hehe. En svona til að upplýsa ykkur smá þá erum við Ingi flutt inní íbúðina okkar í Lyngdalnum í Vogunum, Vatnsleysuströnd. Þetta er raðhúsíbúð í botnlanga, samtals 160fm. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi og samtengdur bílskúr. Dream come true... æðislegt! Ingi er reyndar akkurat núna staddur rétt fyrir utan Noreg á hraðri siglingu inn í höfnina á Bodö þar sem þeir landa og mun hann svo fljúga til Íslands á laugardaginn! Ég er alveg farin að telja niður mínúturnar, enda lagði hann allt sitt traust á mig í sambandi við þessa íbúð og hefur ekki einu sinni séð hana - nema auðvitað á myndum :)
Annars gengur lífið sinn vanagang. Hera er líklegast að flytja með Fríðu "mömmu" sinni til Vík í Mýrdal (hvernig beygir maður þetta nafn?) og sé ég fram á hundlaust heimili í nánustu framtíð. Mér mun heldur ekkert leiðast því vonandi koma strákarnir til okkar fljótlega og ég hef nóg að gera með stórt heimili. Minnir mig einmitt á þvottinn í forstofuherberginu og gólfið sem þarf að skúra.
Adios amigos og takk fyrir hjálpina við flutningana þið sem lögðuð hönd á plóginn!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Dagný:

til lukku! ég frétti að það væri komin rosaleg græja á heimilið frá Norge með manninum... semst engin kreppa í Vogunum? :D

01.11.08 23:44


Hanna:

Kreppa? hvað er það? ;) Já græjan kemur reyndar með skipinu, en ég er búin að sjá bæði mynd og kvittun svo að þetta hlýtur að vera satt! :P

02.11.08 10:07


Guðrún:

Gott að þú ert búin að koma þér svona vel fyrir...en ég er forvitin um hvers konar græja þetta sé?

02.11.08 17:34


Maria:

Hæhæ til hamingju með að vera flutt í vogana stutt fyrir þig að kíkja í kaffi kveðja maja og co

03.11.08 16:08


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín