Föstudagur 22. ágúst 2008 / 10:29 / Skattman
Eins og flestir vita hef ég starfað sem stuðningsforeldri í 4 ár með pásum.
Það er frábært að vera stuðningsforeldri, kynnast frábrugðum heimi fatlaðs einstaklings, láta gott af sér leiða - og ekki er verra að fá laun greidd inná reikninginn mánaðarlega.
Það sem hinsvegar er að fæla mig frá stuðningsforeldrahlutverkinu er Skattman!
Ég var stuðningsforeldri fyrir Akureyrarkaupstað frá janúar fram í maí 2007. Einnig var ég stuðningsforeldri fyrir Svæðisskrifstofu Málefna Fatlaðra Reykjanesbæ frá september fram í desember. Ég, góður borgari, skila auðvitað inn minni skattaskýrslu vandlega útfylltri. Þá þarf sérstaklega að vanda skrifin þegar kemur að stuðningsfjölskyldupartinum. Það þarf að skrifa hér, skrifa þar, draga þetta frá, leggja við, mínusa ákveðnar prósentur og svo lengi mætti (fram)telja.
Þar sem þetta er nú ákveðið púsluspil hef ég alltaf haft samband við þjónustuver Ríkisskattstjóra og verið lóðsað í gegnum þessa skriffinnsku.
Þetta árið varð klúður hjá Ríkisskattstjóra. Á hinum enda línunar var manneskja sem greinilega var ekki starfi sínu vaxin. Það gerir það að verkum að ég fékk engar vaxtabætur og mátti borga Skattman sjötíuogsexþúsundfimhundruðogtíu krónur. (76.510). Í morgun hringdi ég í Skattstjórann í borginni og fékk eftir nokkurt þóf, að tala við Reynir sem þar starfar. Hann komst að þeirri niðurstöðu að ég hafi fengið rangar upplýsingar hjá þjónustuverinu, þar af leiðandi fyllt vitlaust út, ekki nógu vel og reiknað þar að auki vitlausar tölur. Allt sem ég gerði í sambandi við stuðningsfjölskylduna, gerði ég með aðila frá skattstofunni í eyranu sem sagði mér, skref fyrir skref, hvernig ég ætti að gera þetta allt saman og hvar ég ætti að setja þetta inn!!
Það er ansi vandasamt að finna út hvaða manneskja þetta var sem gaf mér svona hrikalega rangar upplýsingar. Sú manneskja skuldar mér nefninlega nokkuð marga þúsundkalla!
Í dag er ég hinsvegar að reyna að redda bókhaldinu mínu norður (það er í Reykjavík, ég á Reyðarfirði - life is so simple!) til að koma því í hendur fróðari manna sem geta gert nýtt skattframtal og skilað því inn - fyrir föstudaginn í næstu viku! Þá skulum við sjá hvernig málin fara. Þetta er samt einfalt af minnihálfu. Vegna svona (haldið fyrir augun á börnunum) djöfulsins vinnubragða mun ég ekki starfa sem stuðningsforeldri í nánustu framtíð. Það er ekkert jafn æðislegt og að eyða dágóðri summu af sumarlaununum, summa sem samsvarar mánaðarleigu, í Skattman vegna þess að maður treysti á að fá réttar upplýsingar í Þjónustuveri Ríkisskattstjóra!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Guðrún:
Þetta er nú meira vesenið, skatturinn ekki að gera sig núna hmm
22.08.08 11:46
Alma:
jaaaaaaaaaaahá, en frábært og æðislegt og allt það!, vá vesen vesen og aftur vesen ;O. en gangi þér nú barasta vel ;)
22.08.08 12:13
Kristjana:
Það fór að rjúka úr tölvunni minni eftir því sem ég las lengra... Mátt sko alveg vera sár, fúl og reið!
23.08.08 15:45
Mundi:
fari skattmann í fúlan pytt
baráttukveðjur
M
24.08.08 18:09
Oj bara, vonandi verður þessu bjargað fyrir horn í vikunni, ömurlegt að þeir geti ekki reddað þessu sjálfir og klára þetta því þeir (ættu að) vita hvernig þeir vilja fá þetta inn... heldur láta þig borga einhverjum endurskoðanda fyrir! Oj bara segi ég enn og aftur, og samúðarkveðjur til þín. Það er ömurlegt að standa í svona, og einmitt ekki til að hvetja fólk til að ganga í þessi störf - ég hélt í einfeldni minni að maður væri bara starfsmaður hjá viðkomandi bæ og setti inn sinn launamiða fyrir þetta.
Hvers vegna í ósköpunum er verið að flækja lífið svona??
24.08.08 20:56
Kata:
Ég hef lent í Skattmann og þvílík skriffinska og hringavitleysa............. ég held að þetta sé viljandi gert svona flókið svo nautheimskur almúginn (þú og ég haha) fatti ekki þegar verið er að rýja hann inn að beini!
....kem annars til rvk í kvöld! er það ekki tjútt bráðum!?
29.08.08 08:56
Þorsteinn Ingi Rangnarsson:
díss afhverju hringduru ekki í mig ?
03.09.08 00:22



