Fimmtudagur 03. júlí 2008 / 22:13 / þú mátt fá'ana, ég vil ekki sjá'ana...

.... því hún er alltof feit!
---
Ég finn hvernig gallabuxurnar þrengjast, andadrátturinn þyngist og fæturnir titra. Já ég er alveg að missa mig í sambandshamingjunni og aukakílóin hrúgast á mann. Ég fer nú samt næstum-því-daglega út að skokka/labba með Trixie og samkvæmt skrefamælinum í símanum mínum labba ég að meðaltali 6km á dag í vinnunni - það er ágætis ganga ;)
Í kvöld skokkaði ég í 40mínútur nánast non stop og kom svo heim, dró fram dýnuna mína, teygjuna og lóðin og gerði nokkrar hallærisæfingar, Trixie horfði áhugasöm og hissa á lóðin fara upp og niður, gafst svo upp og hrýtur núna á gólfinu hjá mér.
---
Það er góð tilfinning að fá nóg af sjálfum sér og vita nákvæmlega hvað þarf að gera til að líða betur.


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Aníka:

heldur betur... það er enginn smá dugnaður í þér kona! :D

keep up the good work!

sakn og knús til þín :*

07.07.08 15:51


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín