Þriðjudagur 15. júlí 2008 / 19:20 / Myndir - Mjóifjörður og Steinasafn
Um helgina var frábært veður og nýttum við hana vel. Á Laugardaginn fórum við með strákana í smá ferðalag niður í Mjófjörðinn, en þangað hafði ég aldrei komið. (myndir hérna). Það var alveg frábær ferð og ótrúlegt að fólk skuli nenna að búa í pínkulitlum firði í smá þorpi (miklu minna en Hauganes). Hlykkjóttari veg hef ég aldrei keyrt, nema kannski í Færeyjum. Við ákváðum að keyra alla leið í Dalatanga ("Dalatangi, suðsuðvestan þrír".. kannist kannski við það) en á leiðinni brotnaði eitthvað stykki sem heldur uppi hásingunni á jeppa(druslunni) svo að við keyrðum á 30 alla leið tilbaka. Vorum 3klst að keyra heimleiðina, en vorum ekki nema klukkutíma á staðinn. Þetta var samt rosalega gaman.
Á sunnudaginn komu Steinunn og Eiður við hjá okkur í Mánagötunni og við ákváðum að fara í samfloti við þau og aðra fjölskyldu að skoða Steinasafn Petru. (Myndir hérna). Nesti var keypt og svo brunað af stað. Strákarnir höfðu mjög gaman af öllu fallegu steinunum og fengu sitt hvorn steininn með sér heim :) Velheppnum helgi í góðra vina hópi.
Næsta helgi verður ekki síðri. Fellihýsi stendur á bílastæðinu og verður því skellt aftan í jeppann á fimmtudaginn og brunað norður á bóginn þar sem Mundi bróðir og Svanhildur ætla að ganga í það heilaga. Gaman gaman!
Þessi færsla er skráð í flokknum



