Þriðjudagur 29. júlí 2008 / 00:17 / Bissy Bee
Ég hef haft í nægu að snúast undanfarna daga og vikur. Ætla að stikla á stóru í myndum og máli hér fyrir neðan fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa hvað á daga mína hefur drifið síðan síðast.
-- myndir komnar hingað --
Helgina 18-20júlí skelltum við skötuhjú okkur norður með börn og skuldahala í eftirdragi. Sem betur fer var þetta ekki okkar skuld að dröslast með, heldur fengum við fellihýsi hjá Kötu og Gísla, vinafólki Inga, að láni og kunnum þeim bestu þakkir fyrir það :) Stefnan var tekin á Hauganesið þar sem við dvöldum í frábæru yfirlæti hjá foreldrum mínum og systkinum. Dagný systir og familí ásamt Baddý systir voru á svæðinu. Æðislegt að hitta þau og leyfa Danna frænda leika aðeins með strákunum "mínum".

Ekki leiðinlegt að busla í gosbrunninum, þó það sé reyndar stranglega bannað ;)
Brúðkaup ársins var svo haldið að Grund í Eyjarfirði laugardaginn 19.júlí. Ekkert smá fallegt brúðkaup, enda brúðhjónin engin önnur en Mundi bróðir og Svanhildur. Til hamingju með þetta elskurnar!

Sæt svona nýgift
Brúðkaupið var líka útilega svo að fellihýsið kom sér vel. Mamma og pabbi fengu húsbíl lánaðann og voru eins og kóngur og drottning í ríki sínu á "fjörkálfinum" hans Ödda. Fengum rosalega gott veður, enþá betri veitingar og frábæran félagsskap. Hlöðudansleikur fram undir morgun og börnin léku sér langt fram eftir, en svefninn var nú samt ekki eftir því - þeir vakna alltaf fyrir allar aldir þessar elskur hehe.

Gott að hafa góða barnapíu á svæðinu - Baddý að knúsa Gísla Valgeir.
Á heimleiðinni stoppuðum við í Höfða, Mývatnssveit - þar sem fólkið á Strönd segir að ég hafi fengið garðyrkjuáhugann ;) Strákarnir skemmtu sér við að kasta steinum í vatnið (mynd) þó að við fullorðnafólkið höfum látið okkur nægja að rölta bara um í rólegheitunum og leyfðum þeim alfarið að sjá um allt steinakast og skógarhlaup. Höfði breyttist í frumskóg með tígrisdýrum og krókódílum með tilheyrandi hlaupum, hlátrasköllum og skemmtilegheitum. Gaman að vera barn með fjörugt ímyndunarafl!

Verið að horfa á eftir steinunum í vatnið
Svo stoppuðum við líka og grilluðum okkur hamborgara við Kröfluveginn. Skemmtileg mynd þetta - sjáiði Ragnar (lengst til vinstri), algjörlega úttroðinn af hamborgaraáti hehe

---
Lítið var slakað á þegar heim var komið og vorum við varla stiginn útúr fellihýsinu þegar við hófumst handa við að baka, græja og gera. Þriggja ára afmælið hans Gísla var haldið með pompi og prakt á miðvikudeginum og fengum við marga góða gesti. Afmælisstrákurinn var hæstánægður með tvíhjólið sem hann fékk frá pabba og stjúpunni og var varla viðræðuhæfur þegar hann geystist um á fáknum fráa.

Þvílík hamingja í gangi - svona líka rosalega sáttur!!
---
Á fimmtudeginum pakkaði ég niður nesti og nýjum skóm (eða bara strigaskóm) og lagði af stað í ævintýraferð ásamt gríslingunum mínum í vinnuskólanum. Það var alveg hriiiikalega gaman við varðeldasöng, draugasögur, eina-krónuhlaup og grillát. Gistum eina nótt í Vöðlavík (um klst akstur frá Reyðarfirði eftir hrikalegum malarvegi) og fengum frábært veður. Lágum í sólbaði framan af degi og skelltum okkur svo í sjóbað niður á strönd. Falleg strandlengjan í Vöðlavík.
Set inn myndir seinna. Á eftir að hlaða þeim inní tölvuna :)
---
Föstudag renndum við upp í Kárahnjúka og skoðuðum framkvæmdir, eða framkvæmdaleysið. Voðalega fátæklegt og lítið annað þarna en moldrok og draugavélar. Stíflan er tilkomumikil og fossinn sem þar mun koma verður vafalaust áhugaverður. Kárahnjúkurinn einstaklega fellegur og vafalaust æðislegt útsýni af toppnum - ég nennti bara ekki að trítla upp til að athuga það ;)
Sama hér. Set inn myndir seinna...
---
Laugardag var stefnan tekin á Bræðsluna. Ætluðum í rómantíska helgarferð, en því var snarlega breytt þegar villingurinn Sævar Kongóbúi (vinur Inga frá Djúpavogi) slóst með í för. Við það breyttist þetta í ...tja... eitthvað annað en rómantíska helgarferð!! Vorum svo heppin að tjalda við hliðiná Sveinlaugu og vinum hennar og má segja að það hafi bjargað mér í öllu strákaveldinu í kringum mig. Þrír strákar frá Hornafirði parkeruðu nefninlega upp við okkur. Hornfirðingar + Sævar var auðvitað bara ávísun á vitleysu og var laugardagsnóttin svefnlítil. Ástæðan fyrir för okkar austur á Borgarfjörð var hinsvegar til að sjá Damien Rice!!! Því miður klikkaði myndavélin heldur betur á okkur (linsan opnast ekki) svo ég á engar myndir þaðan, því miður!) Frábærir tónleikar sem mér fannst þó vera á "fast forward". Hann gaf sér ekki mikinn tíma til að spjalla við kófdrukkna íslenska áhorfendur og dreif sig af sviði mun fyrr en áætlað var. Engu að síður skilaði hann sínu ákaflega vel og gekk ég sátt út úr Bræðslunni.
Bræðslan var rosalega skemmtileg upplifun og náttúrufegurð Borgarfjarðar gríðarleg. Þetta var hinsvegar mun meiri drykkju-útihátið en ég hafði gert ráð fyrir. Vegna þessa hef ég boðið foreldrum mínum að eyða með mér verslunarmannahelginni hér fyrir austan. Við Snjólaug vinkona stefnum á norðurlandið á Fiskidaginn Mikla svo ég tími varla að fara nokkurn skapaðann hlut um versló.
Ingi fer á sjó á morgun, strákarnir til móðurömmu sinnar svo við Trixie verðum bara einar heima um helgina og næstu vikurnar. Nóg að gera í vinnunni og góðir gestir á leiðinni. Svo hef ég líka Snjólaugu mína svo ég kvarta ekki :)
---
Þá er best að fara að leggja sig, enda vinnudagur á morgun og klukkan að ganga eitt!
Klappa fyrir þeim sem lásu þetta allt í gegn! :D Helga, þú varst pottþétt fyrst til að lesa þetta!! hehehe..
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Vala:
Bara að kvitta fyrir komuna;)
29.07.08 10:35
Hæ sætan mín!!
Bara rétt að kíkja á þig og kvitta fyrir ;o)
29.07.08 19:33
hæ hó, ótrúlega gaman að lesa svona langt blogg og skoða myndir. sé að þið hafið verið rosa dugleg að ferðast í sumar og brasa eitthvað gaman saman um helgar.
endilega kíktu á nýju síðuna sem við bjuggum til fyrir krakkana.. hún er samt ekki tilbúin ennþá en við erum að vinna í þessu :)
kveðja úr kópó
29.07.08 22:12
Hanna mín ég les alltaf allt sem þú skrifar, finnst þú frábær penni; kemur hlutunum svo skemmtilega frá þér!
31.07.08 15:18
Kristjana:
Kvitt:)
01.08.08 17:42
hehe auðvitað..var ég það............
04.08.08 21:11



