Laugardagur 28. júní 2008 / 21:38 / myndir
ég gleymdi víst að segja ykkur frá myndunum sem ég var að setja inn. Setti inn nokkrar hundamyndir, myndir frá því að við fórum norður (myndir af Tuma hennar Dömmu!) og svo var ég að enda við að hreinsa símann minn og skellti bara öllum myndunum inná síðuna líka.
Annars er allt gott að rfétta, Lífið gengur sinn vanagang og allir hressir. Fórum í mat til Steinunar og Eiðs í gær, ásamt Snjólaugu sambýling. Heimabökuð pizza og rauðvín. Svo var það önnur rauðvín... og hvítvín... og önnur hvítvín... og breezer... og cider. Mhh þetta var svo góður matur og góður félagsskapur!
Ingi er búinn að vera á sjó á trillu og ég vinn myrkrana á milli á meðan. Aðalsteinn Jónsson, báturinn hans Inga, var að koma úr slipp núna í kvöld þannig að Ingi skellir sér á Allann núna á mánudag/þriðjudag ca. Þá verð ég aftur ein í kotinu, en fínt að hafa Snjólaugu í næsta herbergi og Ölmu frænku Inga í næsta húsi. Eins er frábært að vera í vinnu þar sem ég get unnið eins mikið og ég vil þegar Ingi er að heiman og styttri vinnudaga þegar hann er heima.
---
Jæja. Kíkið á myndirnar, ég ætla að skella mér í göngu með Trixie og Bósa.
Þessi færsla er skráð í flokknum



