Sunnudagur 29. júní 2008 / 20:43 / maturinn
Ég eldaði óóótrúlega góðan kvöldmat í kvöld. Mhhh.. Langar að henda inn uppskriftinni sem er slump-uppskrift, gerð nákvæmlega eins og mig langaði til að gera hana.
---
6 tortillakökur
1 dós refried beans
1 dós maísbaunir
2 dósir salsasósa
1 dós ostasósa
1 dós guacamole
1 dós sýrður rjómi
-
Kjúklingur, annað hvort bringur eða bara afgangar síðan í gær eins og ég notaði :)
1 poki rifinn ostur
sveppir
rauðlaukur
tómatar
Burrito-krydd (Casa Fiesta)
sneitt jalapenos úr krukku
----
Byrjaði á því að taka frekar stórt eldfastmót og hella 1 krukku salsasósu í botninn og smyrjið vel úr henni.
Skerið rauðlauk, sveppi og tómata í smáa bita. Steikið á pönnu og skellið ELDUÐUM kjúkling útá og kryddið með Burrito-kryddinu. Hitið Tortillakökur í augnablik og setjið svo ostasósu, baunir og fíntskorið jalapenos á kökurnar, skellið mixinu af pönnunni inní, rúllið upp og setjið í eldfasta mótið. Þetta endurtakiði með allar 6 kökurnar og raðið þétt í eldfasta mótið ofaná salsasósuna. Síðan helliði smá salsasósu yfir og dreifið úr. Rífið ost (eða kaupið rifinn ost, so much easier) og dreifið yfir, inní ofn í smá stund - á 200°c. Berið fram með doritos, sýrðum rjóma, salsasósu, ostasósu og guacamole.
Borðið með bestu lyst! :)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
mmmm.. ég ætla einmitt að hafa svona mexicó mat í kvöld.. kannski maður prófi þetta :D
hljómar ansi girnilega :D
mmmm!
30.06.08 11:42
Uh já þokkalega Aníka, ég mæli 100% með þessu, þetta var geðveikt gott!
--
Glós fyrir sjálfa mig...
Yael Naim
30.06.08 12:47
glós?
yael naim?
Hanna mín, býrðu ekki alveg örugglega ennþá á Íslandi? ekki nema ég þurfi að fara að koma austur og læra þetta tunugmál sem þið talið þar ?! híhí...
30.06.08 12:54
haha nei ég þurfti bara að punkta þetta nafn hjá mér (söngkona) og nennti ómögulega að standa upp eftir blaði og blýanti og var akkurat að kommenta hérna til baka... hehehehe
:P
30.06.08 21:48
er þetta ekki eins og þú gerðir einu sinni heima (eða einhversstaðar þar sem ég var líka að borða)??
01.07.08 22:17
Jú þetta er svipað, en þá var ég samt með eitthvað annað innihald, allavega ekki maís né refried beans... veit iggi hvort ég var með kjúlla í því eða hakk :) Bara tilraunastarfsemi í gangi sem fékk MJÖG góðan endi :P
01.07.08 22:52



