Fimmtudagur 12. júní 2008 / 22:18 / Garðavinna
Það er ansi mikil þögn í Mánagötunni núna. Strákarnir fóru til mömmu sinnar í dag og Snjólaug frænka Inga sem leigir hérna hjá okkur fór suður í viku. Frekar skrítið að vera svona ein í kotinu. Allt í einu eru tveir ærslabelgir farnir og Bósi, hundurinn, líka. Get samt ekki neitað því að það var ljúft að þurfa ekki að hugsa um kvöldmat, bursta tennur, þvo litla kroppa með viðeigandi "legg'í'lófa", koma í bólið og syngja "Dvel ég í draumahöll". Þess í stað unnum við í garðinum til rúmlega átta (heimanjólinn úr beðinu að framann farinn mamma mín, laaaangt út fyrir garðinn!), fórum með garðúrganginn á haugana og fengum okkur svo Quiznos. Aðeins að njóta þess að þurfa ekki að malla mat ;)
Hérna er allt að komast í stand. Bara eftir að festa upp nokkrar myndir og þá er húsið orðið fínt. Væri reyndar alveg til í að losna við þennan blessaða hornsófa úr stofunni, en það kemur. Í augnablikinu erum við með sæti fyrir svona 100 manns í stofunni, ef einhverjum vantar veislustað!
----
Dagarnir mínir fara semsagt í vinnu frá 8-15:30 (vinn stutt meðan strákarnir eru hjá okkur, annars vinn ég til amk 6) svo höfum við eytt restinni af deginum í garðinum þar sem strákarnir og hundarnir njóta sín í botn. Svo er kvöldmatur, koma öllum í bólið og svo höfum við venjulega farið aftur út í garð að dúlla okkur. Yndislegt alveg hreint - enda er veðrið búið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið.
---
Það er svo gaman í vinnunni að ég hefði eiginlega ekki getað trúað því. Kannski er ég á rangri hillu - ætti að læra skrúðgarðyrkju! Mér finnst yndislegt að eyða deginum úti við. Raka, mála, kantskera, bera á áburð, hreinsa úr beðum og ýmislegt annað dundur. Frábært að fá að vera úti daglangt og ekki skemmir fyrir að unglingarnir hérna eru hver öðrum duglegri. Ekkert hangs-rugl í gangi og allir gera sitt besta... oftast.
--
Núna bíð ég bara eftir að fá hringingar frá vinum og ættingjum sem vilja gera sér ferð til Reyðarfjarðar - eða eiga bara leið hjá í sumarfríinu!!
---
Langar í lokinn að monta mig pínu - sjáiði muninn? Og þetta er sko EKKI mynd af smáatriðinum sem skipta svo miklu máli.
Garðurinn á mánudaginn (samt yfirlýst mynd, sorry það!)

Garðurinn í gærkvöldi

---
og svo sætustu ferfætlingar í heimi

p.s. sjóðheitarmyndir hérna
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
Hanna mín þú drífur þig náttúrulega til okkar í menninguna á Akureyri á 16.júní og hittir okkur Hskvísurnar, annað gengur náttúrulega ekki!:)
Voðalega eruði þið dugleg í garðinum, lítur ofsa fínt út á myndunum:)
13.06.08 11:03
hvernig er það, er hægt að fá alla þessa dugnaðarforka þarna fyrir austan, norður í smá verkefni eða? ég horfi á moldahrúguna fyrir utan hjá mér, sem þarf ótrúlega að slétta úr, og hugsa: "djöfull væri ég til í að nenna þessu!" en segi svo: "ah, fokkitt, nenni þessu enganvegin!"
hehe...
en gaman að sjá þig á föstudaginn svona óvænt! :D knús á ykkur :D
15.06.08 20:16



