Laugardagur 07. júní 2008 / 21:25 / Austfjarðarmær

Oh hvað það er gott fyrir austan. VIð erum búin að koma okkur fyrir og vorum meira að segja svo heppin að fá búslóð frá ALCOA, ársgömul ca og allt innifalið á góðum prís. Sófasett, sófaborð, sjónvarp+sjónvarpsborð, eldhúsborð og 6 stólar, hjónarúm, þvottavél, þurrkari.... need I say more? Plús öll rafmagnstæki eins og ryksuga, hrærivél...
Strákarnir eru búnir að vera hérna hjá okkur síðan á fimmtudaginn og allt í lukkunar velstandi. Rignir reyndar eins og hellt væri úr fötu núna og búið að rigna í mest allann dag. Við tókum okkur samt til og skelltum okkur í pollafötin og út í garð í þessa klukkutíma sem ekki rigndi. Náði að stinga upp nokkur fífl... nei meina fífla ;) Nóg eftir að brasa í garðinum, hreinsa úr beðum, græja jarðarberin, koma gróðurhúsinu í stand etc etc. Getið séð myndir frá deginum hérna.
---

Ég fékk vinnu sem flokkstjóri hjá Fjarðabyggð hérna á Reyðarfirði. Eyði sumrinum með Guðrúnu Veigu (jej!) og unglingum á svæðinu. Ekki slæmt það þykir mér!
Núna sitjum við Ingi með Eðalbjór í hönd, dauðþreytt eftir daginn og hlustum á rigninguna berja sólskálann að utan. Vildi óska að ég gæti verið hérna að eilífu.....


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Edda:

Mig vantar garðyrkjumann í Birkilundinn!!! Þú ert svo helvíti myndarleg við þetta þannig að ef þig vantar eitthvað að gera þá...... :)
Hilsen frá Grenivík

08.06.08 21:59


Aníka:

WTF!! newsflash!! ertu flutt austur? ertu hætt á voffaborg? hva???


-uh, væri gaman að heyra aðeins í þér! er eitthvað fleira sem ég þarf að vita?

gellan sem veit ekki neitt :P

09.06.08 17:49


Kristjana:

Kúltast í heimi... Hvenær má ég koma í heimsókn!?

09.06.08 22:30


Regína:

Æji hvað þetta er krúttlegt hjá ykkur! Gott að þú ert búin að æfa þig fyrir sumarvinnuna;) Hafið það gott í sveitinni!

11.06.08 12:10


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín