Föstudagur 30. maí 2008 / 21:26 / endalaust flakk

Já hvenær ætla ég eiginlega að koma mér fyrir? Vegna ýmsa ástæðna, þó aðallega húsnæðisvanda ákvað ég að flýja borgina og skella mér austur á boginn alla leið til Reyðarfjarðar. Já alveg rétt, víst búin að gleyma að skrifa það hingað inn að þessi sambandsslit okkar Inga entust í svona tja... max viku ;) Gátum bara ekki án hvors annars verið og ákváðum bara að sætta okkur við að okkur er bara ætlað að vera saman. Nóg af þessu mússímúú tali. Aftur að mér. Ég er semsagt að flytja austur í næstu viku, tek Trixie með mér og Ingi ætlar að fljúga suður til að keyra með mér austur. Ég er nokkurnveginn save á að vera flokkstjóri fyrir austan og vinna líka hjá bænum einhverja aukavinnu. Fínt enda að vinna með frábæru fólki, Guðrúnu og Þórdísi systir hennar ;) Yeah beibis. Þetta verður geggjað sumar :D
Það byrjaði allavega rosalega vel í Voffaborg. "Hund"leiðinlegt að fara þaðan, en ég ætla að snúa tvíefld til baka í haust og vinna þar með skólanum. Snilldar staður og dásamlegir eigendur!
---
Ég fór austur síðustu helgi og naut veðurblíðunnar í botn við að slá garðinn, hreinsa beðin og sinna strákunum hans Inga. Ætla að setja inn nokkrar myndir af veðurblíðunni hérna neðst. Veðrið var hreint út sagt rugl. Borðuðum til dæmis hádegismat/kaffi alltaf úti í garðinum fína og grilluðum pylsur og svona. Rosa stuð. Þetta var yndisleg helgi, takk strákar mínir! =#
DSC00162.JPG
Ragnar Björn að renna sér.
DSC00165.JPG
Ég og Gísli Valgeir að knúsast
DSC00167.JPG
Sólgleraugna-skötuhjú :)

Jæja. Næsta blogg verður líklegast frá Reyðarfirði þar sem ég er að vinna á fullu í Voffaborg, síðustu vinnuhelgina mína :(


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Ingi:

Hlakka til að fá þig austur ástin ;)

30.05.08 22:01


helga Kristín:

hehe hlakka líka til að fá þig austur.... meiri líkur á að við hittumst...hehe:)
miss u darling....
ég þarf að senda þér myndir af drengjunum eftir helgina...við tækifæri...á eftir að downloda þeim inn..:)

kv. rjómabollan þín norðan heiða

30.05.08 23:40


Nanna:

Jáhá! Reyðarfjörður, það er auðvitað betra að búa á Eskifirði!!! ;) Góða skemmtun fyrir austan í veðurblíðunni!

01.06.08 12:54


Rósalind:

Verður þá ekkert sumardjamm hjá okkur stelpa?!?!
Ég hef ekki einu sinni tekið próflokadjamm...
Hafðu það samt frábært fyrir austan snúlla!!

01.06.08 21:11


svansa:

Hæ skvís! hafðu það rosa gott fyrir austan :) þið eruð mjög myndaleg hjón, þið tvö ;) - bestu kveðjur frá geðveikinni í landsbankanum! :)

02.06.08 13:16


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín