Laugardagur 03. maí 2008 / 21:05 / Bloggidiblogg

Ég hef nákvæmlega enga orku eftir til að blogga. Það tekur svo sannarlega á að vinna í Voffaborg. Í dag voru um 27 hundar í húsinu og nóg að gera við að smala liðinu út, leika, passa að engir fari að rífast ;), gefa að borða, taka á móti, skila af.... Jább þetta er ekkert afslöppunardjobb :) Svo ég tali nú ekki um allt hundaslefið og hundahárin!! Þetta er samt yndisleg vinna og rosalega gott að vera svona þreytt. Klukkan er ekki orðin tíu og ég er að hugsa um að fara að sofa. Sjaldséðnir hvítir hrafnar!
---
Senn fer að líða að flutningi í Grafarholtið. Bjarni - þú manst þú ætlaðir að hjálpa mér að flytja, og svo bjóða mér í grill&öl ;) Þýðir ekkert að svíkjast undan sko!!
Er að hugsa um að halda innflutnings/afmælispartý núna í maí þegar ég er í fríi, þ.e.a.s. ef ég næ að flytja allt mitt hafurtask tímanlega. Kemur í ljós hverjum ég býð hehehehe
----
Annars býst ég við því að vera ekki á netinu næstu daga. Þarf að lesa sjúklega mikið fyrir föstudaginn og eins gott að halda sig við efnið, en ekki hanga á hundaspjallinu, rottweilerspjallinu og facebook.
---
Þangað til næst - yfir&út, ekkert stress... bless!


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín