Mánudagur 19. maí 2008 / 11:04 / Að standa við orð sín - flutt!
Þá er ég loksins flutt. Reyndar með fulla geymslu af drasli sem á eftir að fara yfir. Sumu má henda, annað ætla ég að nota og hugsanlega gefa eitthvað. Þarf að kaupa nýja eldhússtóla þar sem Jóni tókst að brjóta alla sína! Talandi um að vera fat-ass! Nei djók, bara afskaplega illa gerðir stólar. Það er ljúft að vera flutt en hundleiðinlegt að geta engum kennt um uppvaskið nema manni sjálfum hehe. Það er gott að búa ein. Svo sef ég líka svo rosalega vel hérna. Vaknaði rétt fyrir 10 í morgun, fór á fætur (í brók og bol og labbaði óhrædd um allt! jess..) og kveikti á græjunum. Bjartmar Guðlaugs var í tækinu (Sem dæm'um góðan dag má nefna daginn í daaaag). Hann kemur mér alltaf í sólskinsskap þessi elska. Á verkefnalistanum í dag er að fara í Veiðihornið og fjárfesta í smá girni til að skella nokkrum málverkum uppá vegg. Ég er svo heppin að eiga hæfileikaríka systur í þessum efnum (sem og öðrum) og nokkur málverkanna fylgja mér hvert fótmál.
--
Svona ef þið voruð ekki búin að taka eftir því þá hef ég sett máltæki eða frægar setningar hérna til vinstri á síðunni minni. Ég breyti því nákvæmlega þegar mér sýnist eða þegar ég rekst á eitthvað gáfulegt eða eitthvað sem passar við það sem er í gangi í lífi mínu þá stundina.
Jæja. Ég ætla að koma mér í eitthvað merkilegra en að blogga - þó það útaf fyrir sig sé auðvitað stórmerkilegt fyrirbæri.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
sandra:
hæ hó
til hamingju með að vera flutt ;)
19.05.08 19:49
Ekkert betra en að geta labbað nakin um íbúðin án þess að nokkur sjái né skipti sér af því...:P
þér á eftir að líða vel þarna ein í sumar.......svo hefur nóga gistingu þegar einhverjir koma í bæinn:P
jæja miss you darling
kv. Helga
20.05.08 11:06
Lilla:
Sælar !
Til hamingju með að vera flutt, en það þýðir þá bara eitt... INNFLUTNINGSPARTY !! :D
24.05.08 08:53
Ég er sammála seinasta ræðumanni...Innflutningspartý!!
27.05.08 15:13



