Fimmtudagur 08. maí 2008 / 15:57 / Með fiðrildi í maganum!

Vá hvað það er erfitt að sitja hérna inní á Háskólatorginu og horfa út. Sjá sólina brosa svo blítt við Hallgrímskirkju og grasið verða sífellt grænna. Sumarið er komið og ég get ekki notið þess fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku! Próf í fyrramálið og annað á þriðjudaginn. Fer bara í tvö próf þessa próftíðina, en mér þykir það nú bara andskotanum nóg. Annar áfanginn ætti líka að vera í símati og próflaus. En hvað um það, breyti því bara þegar ég er orðin Rektor Háskólans, nú eða Menntamálaráðherra... eða Forseti Íslands.
----
Þegar ég fer að læra og á að einbeita mér að náminu af fullum krafti, fer ég alltaf að hugsa um eitthvað annað! Oftast fer ég að hugsa um fortíðina, allt sem hefur breyst hjá mér, hvað lífið hefur gert við mig og fyrir mig.
---
Fyrir tveimur árum síðan fékk ég í hendurnar flugmiða til Californíu. Kláraði MA og flaug síðan á vit ævintýranna. Ári seinna var ég með fiðrildi í maganum, á leið til Grímseyjar. Reyndar ekki lögð af stað, en farin í huganum. Síðasta sumar var svo geggjað, æðislegt, frábært og yndislegt! Hefði ekki getað verið hjá skemmtilegri, uppátækjasamari og góðhjartaðri fjölskyldu. Þar sem er hjartarúm er húsrúm átti vel við á þessu heimili! Hugsa oft til Grímseyjar og fólksins "míns" þar.
----
Í dag er ég líka með fiðrildi í maganum, en af öðrum ástæðum sem ég get eiginlega ekki talað um strax. Kem með blogg og myndir eftir helgina. Eiginlega má segja að ég sé með heilt fiðrildabú í maganum.
---
Flyt í Grafarholtið í næstu viku, og tek Trixie með mér. Djíí get ekki beðið. Þeir sem vilja fá mig í heimsókn í sumar verða víst að sætta sig við að ég drösla með mér 46kg Rottweiler flykki :)
Þeir sem ekki geta sætt sig við það fá bara enga heimsóknir frá mér í sumar!
---
Hlakka svo til að fá Dagný, Óla, Danna og Bumbubúann heim til Íslands í sumar. Ætla svo innilega mikið að kynna Trixie og Danna, þau verða ábyggilega góðir vinir :) Hún er svo barngóð og yndisleg.
---
Svo er Baddý líka að koma suður vonandi á sunnudaginn! Systir sæl, þú kemur tímanlega í flutningarnar ;) múhaha!
---
Já það er ekki skrítið þó að fiðrildin láti á sér kræla. Þetta er svo spennandi sumar!! - Og Mundi og Svanhildur! Takk fyrir frábært boðskort! Vona að ferfætlingar megi líka tjalda á túninu ;)

april%20115%20copy2.jpg
Bjútí!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Guðrún:

Ég kýs þig pottþétt ef þú býður þig fram sem forseta Íslands:)

08.05.08 17:56


Kata:

jæja.... maður er ekki einu sinni í vinalistanum hér til hliðar ;) grín

en já ég er líka með fiðrildi í maganum.... þó ekki fyrir sumrinu.... heldur blessuðu haustinu!!! úffff hlakka til þegar þetta sumar er búið :D

09.05.08 15:18


Hanna:

Sorry Kata mín! Búin að redda þessu og skella inn tengli - vonandi er mér fyrirgefið ;)

09.05.08 18:49


Ólöf Lilja:

Ómæ! svo áttu afmæli á sunnudaginn! búin að gleyma því?

09.05.08 19:38


Hófý:

til hamingju með daginn :D

11.05.08 15:12


Guðrún Veiga:

Til hammó með ammó mín kæra ;-)

11.05.08 16:39


Helga:

Elsku kellingin mín ....ekki spryja mig afhverju ég sé ekki farin að sofa......INNILEGA til haminjgu með daginn...þykir verst að hafa ekki getað kisst þig og knúsað áður en þú fórst ´út í vél í morgun.
Takk fyrir alla hjálpina í gær, það er ómetanlegt að eiga svona góða - "bestustu" vinkonu eins og ÞIG.
Mér þykir óendanlega vænt um þig

kveðja
Helga

12.05.08 01:34


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín