Sunnudagur 13. apríl 2008 / 11:15 / Skjótt skipast veður í lofti
Jæja.... miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið. Breytingar sem ég vildi ekki skrifa um fyrr en allir væru búnir að frétta það sem standa mér næst. Ég og Ingi hættum nefninlega saman fyrir ekki svo löngu síðan og ákváðum að vera bara vinir í sumar og sjá svo til hvað verður.
Ég hinsvegar ætla að vera í borginni í sumar (sorry Mamma&Pabbi, Helga, Aníka, Freyja, Damma, Jói, Karen frænka.....) og hefur verið voðalega lítið mál fyrir mig að fá vinnu. Eiginlega þarf ég að velja! Ég er að fara í eitt viðtal í dag kl 18, annað á þriðjudaginn kl 15 og þriðja á miðvikudaginn kl ? (man það ekki aaalveg.. Afhverju setti ég það ekki inní Google Calendar?!) Mig hinsvegar langar mest í vinnuna sem ég er að tjékka á í dag. Ef þeim lýst vel á mig og mig á þá -- þá verður ekki aftur snúið held ég :) Segi ykkur seinna hvaða vinna það er!
---
Annars er ég komin í smá aukadjobb og það er í H10-Sport og Spa. Nýja líkamsræktarstöðin í Kórnum, Kópavogi.
Þar verð ég bara aukamanneskja sem kíki við annað slagið og tek eina og eina vakt. Það verður semsagt nóg að gera hjá mér í sumar og ég sé nú ekki fram á mikið sumarfrí, enda veitir manni svosem ekki af því að hafa nóg milli handanna næsta vetur!!
----
Ég er búin að vera dugleg að fara út á hverjum degi með Trixie mína, og er að gæla við þá hugmynd að hafa hana í sumar meðan eigandinn er á sjó. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska, og fer afskaplega lítið fyrir henni, svona miðað við að hún er 46kg!! Ótrúleg brussa svosem, en með þvílíkt og annað eins jafnaðargeð! Dýrka þennan hund. Ef ég fæ vinnuna sem ég vonast til að fá þá get ég líka haft hana með á hverjum degi sem munar miklu. Annars er hún rúmlega 2ja ára og vön því að vera ein heima. Ekkert hvolpalífsvesen :)
----
Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera núna, enda er hann búinn núna á föstudaginn, svo eru það bara prófin 9 maí og 14 maí (akkurat sitthvorumegin við afmælið mitt, frábært!)
Er að vinna í ritgerð sem þarf að skila á föstudaginn, lagfæra skýrslu fyrir 24apríl og ritgerð 2 maí. BissíBee verð ég að segja!
---
Jæja. Þetta voru örugglega miklar fréttir fyrir ykkur að innbyrgða, svo ég læt þetta duga í bili.
Knús á línuna!
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
það verður svo gaman hjá okkur í borginni í sumar. Grill hjá Helgu minni, tjill í heitapottinum hjá mér og GS og endalausar Nauthólsvíkurferðir. bara gleði segi ég!
13.04.08 13:17
sandra:
ok ég skil alla fyrir norðan sem eru ótrúlega svekkt að fá þig ekki norður en ég er svo ótrúlega sátt með að hafa þig hér í borginni í sumar og allan næsta vetur líka :) vona að þú fáir vinnuna sem þig langar mest í, skil nú ekki af hverju fólk ætti ekki að berjast um þig.. en það er kannski bara ég ;O) sjáumst
ps þarf að heyra í þér fljótlega, og kemstu ekki örugglega á morgun?
13.04.08 14:15
Sandra: Auðvitað kem ég :)
Baddý: Já þetta sumar verður summer to remember! :D
13.04.08 16:23
Ólöf Lilja:
Jeijj ég er ótrúlega ánægð að geta heimsótt þig í sumar!! það verður sko grillað í íbúðinni ;)
14.04.08 18:15
hæhæ Hanna mín, takk kærlega fyrir innlitið á síðuna :) ég skoða þessa síðu nú líka reglulega en ég er bara lélegasti kvittari sem fyrir finnst!! En JÁ TAKK.. það væri magnað að fá myndir af skvísunum ef þú átt þær til :) snilldin ein!
en já, gaman að heyra frá þér skvís, langt síðan maður hefur séð í skottið á þér.
Heyrumst :)
14.04.08 19:43



