Þriðjudagur 15. apríl 2008 / 23:18 / Ný vinna - nýtt upphaf?!

Jæja. Ég byrjaði nokkurnveginn í nýju vinnunni í dag. Ætli það sé ekki bara best að skella inn einni mynd af mér í vinnugallanum ;)
voffaborg.jpg
Jább. Ég er farin að vinna í Voffaborg sem er hundaleikskóli/hundahótel. Lýst rosalega vel á þetta og hentar mér fullkomlega! Ég er komin með íbúð í Grafarholtinu og er því bara svona ca 10mín í vinnuna sem er í Víðidalnum. Ég er líka komin með aukavinnu í H10 sport og spa þannig að nóg verður að gera hjá mér í sumar! Því miður byrja ég ábyggilega að vinna af fullum krafti strax eftir prófin, eða 15 maí, svo ég veit ekki hvort ég kem eitthvað norður á næstunni :( Aldrei að vita samt sem áður hvað mér dettur í hug að gera.
---
Árin eru farin að setja mark sitt á Rúfus greyið sem, eftir velútiláta ristilspeglun framkvæmd af Gunnari Smára, þarf hreinlega að skipta um ristilinn og hringvöðva. S.s. pústkerfið er eitthvað orðið lélegt og þarf að skipta um allt heila klabbið. Ekki langt síðan ég lét skipta um kúplingu,
og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildarmanni að hugsanlega þyrfti líka að skipta um bremsuklossa.
Iss núna er sko gott að geta bara hækkað í græjunum - þá hverfa öll svona vandamál :D


Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur.

/ Álit

Bjarni Ey:

Vertu velkomin í Grafarholtið nágranni. Þú getur athugað með mig ef þig langar norður, ég er alltaf á ferðinni. Er t.d. að fara norður á sleða og bretti á morgun. Gaman gaman.

16.04.08 14:42


Hanna:

Takk Bjarni minn, ég hef þig bakvið eyrað! Svo manstu að þú lofaðir mér mööörgum grillveislum í sumar (og því fylgir að sjálfsögðu einstaka bjór hehe)

16.04.08 18:55


Ólöf Lilja:

Jæja ég ætla að reyna að commenta hérna í 5 skiptið.. það er eitthvað vesen á þessu neti hjá mér.... En allavega til hamingju með vinnuna! Ég og Ása vorum að tala um að ef þú fengir ekki þessa vinnu þá myndum við hringja og skamma þetta fólk. En auðvitað var það óþarfi :)

16.04.08 20:01


baddy systir:

til lukku með nýja jobbið. en já það mætti halda að þú værir búin að umgangast mig of lengi. farin að tala um að bíllinn hafi farið í ristilspeglun og alles.. en já þú veistu þú getur fengið honduna í sumar.. þá geturu farið með alla hundana á rúnntin:)

17.04.08 00:09


Kata:

haha.... voðalega ertu mikil hundakona! :) mér finnst það stórkostlegt....

....annars á ég eftir 4 ritgerðir og á eftir að læra undir 2 próf í áföngum sem ég hef sárasjaldan mætt í en!! ég hækkaði bara í græjunum og nú er lífið miklu betra! :D

17.04.08 11:52


sandra:

hæ hó
hvað segiru skvís, til hamingju með nýju íbúðina og nýju vinnuna og væntanlegan nýjan ristil og hringvöðva í rúfus :)
það er nottlega ótrúlegt að lesa bloggið þitt, endalausar frásagnir af dugnaði og krafti - aldrei dauður tími hjá hönnu sinni ;) sé þig á morgun kjútí

17.04.08 16:19


Birkir:

Þú meinar Júllugallinn

25.04.08 02:09


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín