Miðvikudagur 02. apríl 2008 / 22:12 / Nææægur tími
Ohh ég vildi óska heitt og innilega að ég hefði svona mikinn frítíma milli handanna.
Þess í stað einkennast dagarnir mínir af skóla, lærdómi, hundaskokki, vinnu, tölvuhangsi og enþá meiri lærdómi. Já próf í næstu viku, ritgerðarskil vikunni þar á eftir - en svo fer að sjá fyrir endann á þessu. Önnur ritgerð 2.maí en hana ætla ég að gera í "sveita"sælunni á Reyðarfirði! Flyt þangað eftir litla 20 daga ca! Tja... varla kannski hægt að segja að maður sé að flytja þegar það eina sem maður tekur með er fötin, málverkin og hugsanlega nokkur glös og diskar haha. Ætla samt að hafa með kommóðuna góðu og skrifborðið - en rúmið fær að bíða í geymslu fram á næsta haust þegar ég kem aftur í borgina. Trúi því varla að ég sé að fara að verða 2.árs nemi... og þá bara eitt ár eftir! Djíí þetta er ótrúlegt.
Fékk tvö símtöl í dag, annað frá sjúkrahúsinu á Neskaupsstað sem vildi endilega fá mig í vinnu - og hitt frá Capacent sem sér um ráðningarnar fyrir Fjarðarál. Já þeta er allt saman að skýrast! Svo erum við að öllum líkindum komin með húsnæði á Reyðarfirði, stórt einbýlishús svo að það eru ALLIR velkomnir í heimsókn, sleepover, helgardjamm nú eða bara til að hitta hina yndisfögru og unaðslegu (fyrir þig Palli) Hönnu ykkar. Ég vil SÉRSTAKLEGA mælast með því að Birkir mæti á svæðið með kafloðnu dóttir sína (sonardóttir mín - enda Birkir besti sonur í heimi) og taka góða helgi í sveitafílingnum, tölta uppá einhver fjöll (og jafnvel firnindi, ha - ha - ha) og sýna mér æskuslóðirnar.
Enda þetta á mynd sem ég stal frá Baddý systir. síðan úr Kaldbaksferðinni góður. DJÖFULL var gaman, og Freyja, þú misstir af miklu.

Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
sandra p:
hæbbs og takk fyrir í gær og fyrirfram þökk fyrir kvöldið í kvöld ;)
langaði bara svona að spyrja þig í framhaldi af eldhúsborðsumræðu fyrir einhverjum vikum/mán síðan: langar þig enn að fá eldhúsborðið okkar? erum nebblega búin að fjárfesta í nýju borði...
03.04.08 12:04
sandrap:
hæ hæ
commentið mitt hvarf!
ætlaði bara að spyrja hvort þú hefðir enn áhuga á eldhúsborðinu góða? þar sem við erum búin að fjárfesta í nýju eldhúsborði...
03.04.08 12:08
Guðrún Veiga:
Oh, ég er orðin æææsispennt að fá þig! ;-)
03.04.08 13:13
Jahérna. Maður bara roðnar. Þessi mynd er jákvæð. Hún er ekki Reykjavíkuð áðí.
04.04.08 13:21
verst að ég náði ekki mynd af hortaumnum sem fylgdi byltunni en hvarf skjótt upp með fyrstu sogu! hehehe
06.04.08 22:38



