Þriðjudagur 01. apríl 2008 / 00:44 / Hundalíf
Eftir að hafa barist fyrir Nick í sl árið hef ég svo sannarlega fengið að kynnast því hvernig þetta blessaða hundalíf er. Þrátt fyrir öll mótlætin sem ég mætti með Nick mér við hlið, stend ég föst á því að á mínu heimili skal verða hundur í framtíðinni, ef ekki tveir. Píla fylgdi mér í gegnum barnæskuna, og Nick fylgdi mér í gegnum erfiða tíma á lífsleiðinni. Var til staðar þegar ég þurfti á honum að halda, og ég launaði honum greiðann þegar hann þurfti á mér að halda, eins og góð vinkona mín úr hundaheiminum orðaði þetta svo fallega.
Núna er staðan hinsvegar orðin þannig að Nick er í góðum málum í Keflavík og ég hætt að hafa áhyggjur af honum - og vona að það sé til frambúðar :) Þvílíkur léttir og hamingja að vera búin að finna heimili sem tekur honum opnum örmum. Ekki misskilja mig Kolla mín, þið Kalli voruð FRÁBÆR við hann Nick. En þú veist alveg hvað ég meina.
Vegna Nicks hef ég verið svolítið inná Rottweiler-spjallinu og rakst á þann sorglega þráð að lesa um að "konungur Rottweileranna" væri orðinn alvarlega veikur. Með taugasjúkdóm og mænan í klessu. Hann brosir þó allan hringinn og sýnir engin merki um sársauka. Þetta video fékk mig þó til að fella tár (enda meyr eftir allt sem undan hefur á gengið). Vinir og vandamenn Berglindar (Eiganda Atlasar) hafa tekið höndum saman og stofnað söfnunarreikning fyrir því sem koma skal í baráttunni að ná Atlasi góðum. Atlas og Berglind eiga heiður skilið fyrir hugrekkið.
Fyrir þá sem vilja leggja hönd á plóginn er þetta reikningsnúmerið:
Banki: 0117-05-067025
Kt: 250578-3269
Berglind Kolbeinsdóttir
Ég hvet ykkur til að styrkja Berglindi og Atlas í baráttunni við veikindin.
Þó það sé ekki nema bara 500kr
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Svanhildur:
Ég gat nú ekki séð þetta video en er virkilega búið að stofna söfnunarreikning fyrir veikan hund??? Fyrirgefðu, ég veit þú ert ekki sammála mér og ert voða hrifin af hundum en common, er ekki til nóg af veiku eða fátæku fólki sem þarf miklu meira á peningunum að halda.
Ég kaupi nú gjarnan penna, lyklakippur eða happdrættismiða af blindum, heyrnalausum eða öðrum fötluðum og af björgunarsveitum eða Rauða krossinum o.s.frv. en það er langt í að ég fari að styrkja einhvern hund úti í bæ.
02.04.08 13:55
Ekkert mál Svanhildur mín, gott að fólk hefur misjafnar skoðanir. Ég skil alveg hvað þú meinar með þessu innleggi og fjölmargir sem hugsa svona líka. Það verða margir hvumsa þegar maður segir það að missa hund sé hreinlega eins og missa nákominn ættingja. Hundur er jú bara hundur ekki satt? Það er ekki fyrr en maður kynnist því sjálfur að eiga hund, félaga, besta vin til margra ára að maður fer að skilja um hvað málið snýst :)
En ég er rosalega ánægð með þig að styrkja góð málefni!
02.04.08 20:20



