Mánudagur 07. apríl 2008 / 11:34 / Helgin
Þessi helgi var afskaplega ljúf og góð. Fór á föstudaginn í síðustu vísindaferðina á þessu skólaári. Kíktum í heimsókn í Hrafnistu, Reykjavík og skemmtum okkur virkilega vel þar. Góður og gagnlegur fyrirlestur og frááábærar veitingar :)
Celtic Cross stóð fyrir sínu og dansinn dunaði á Hverfis. Var reyndar búin að lofa sjálfri mér því að fara aldrei aftur inná þann stað eftir að veskinu mínu með símanum OG myndavélinni var stolið þaðan í ..hva... Nóvember? Eeeeenn jæja, það verður nú að grafa stríðsexina einhverntímann.
Þaðan fór ég í partý og þaðan aftur niður í bæ og svo heim seint og síðar meir. Djöfull var þetta skemmtilegt! Kom mér á fætur uppúr hádegi á laugardaginn, skellti mér í sturtu og brunaði uppá Akranes þar sem Ólöf og Ása tóku á móti mér fagnandi við Fjölbrautarskólann. Við fengum þessa líka frábæru aðstöðu þar til að læra fram eftir öllu. Á laugardagskvöldið gaf mamma #2 mér hamborgarahrygg með öllu meðfylgjandi - týnda dóttirin komin heim og um að gera að fagna því vel ;) Takk kærlega fyrir mig Hulda og Óli.
Laugardagsnóttinni eyddi ég hrjótandi í rúminu hennar Ólafar, vöknuðum temmilega snemma við ilmandi skonsulykt úr eldhúsinu, skriðum á lappir (ég enþá með hálflokuð augun) og fengum okkur glóðvolgar, nýbakaðar skonsur! Ohh namminammm!!
Eftir það var lært frá 11 um morguninn til 10 um kvöldið með samtals, grínlaust, 1klst pásu! Þetta var rosaleg törn, enda veitti okkur ekkert af því. Aðferðafræðipróf á þriðjudaginn og vonandi rúlla ég því upp því ekki náði ég að mæta í síðasta próf sökum veikinda :(
Ég lagði því af stað aftur í borgina seint í gærkvöldi, keyrði í myrkrinu og þá er alltaf gott að eiga góða systur að spjalla við :) Takk fyrir spjallið Baddý mín!
Jæja. Best að halda áfram að læra. Ætla samt að setja inn smá sýnishorn af föstudeginum sem ég stal af hinum og þessum myspace/facebook síðum - takk girls!
p.s. ég var víst kosinn formaður/varaformaður Padeiu (félag uppeldis-og menntunarfræðinga) sem er maaaagnað!!

Ólöf og ég, algjörar bjútís

Já þetta er stórfurðulegur hópur í þessari uppeldis-og menntunarfræði!

Ástandið á okkur var EKKI eins slæmt og þessi mynd sýnir! ;) fíflalæti.is
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Ólöf Lilja:
Þetta var skemmtileg vísindaferð! :) og ótrúlega flottar myndir af okkur hehe ;) en já við náum þessu prófi! trúi ekki öðru. Annars er alltaf yndislegt að fá þig í heimsókn og þú ert velkomin hvenær sem er :**
07.04.08 11:58
Bjarney:
Vá hvað þú lítur vel út Hanna mín!!:)
07.04.08 18:24
Bjarney: Takk elskan ;)
Ólöf: Takk elskan - ég tek þig svo sannarlega á orðinu!! :D
07.04.08 19:17
heyrðu vinkona, ertu að hverfa?? gellan :)
07.04.08 21:11



