Miðvikudagur 09. apríl 2008 / 23:24 /

Góðan daginn!

Hvernig væri að íslenskir neytendur tækju sig saman og stæðu með vörubifreiðastjórum til að knýja fram lækkun á bensinverði.
Hugmynd: Ef neytendur tækju sig saman og myndu hætta allir sem einn að versla við eitthvert eitt olíufélaganna. Byrjum á stærsta félaginu td. N1 Þá myndi væntanlega það olíufélag verða áþreifanlega vart við þá aðgerð og neyðast til að lækka verð til að verða samkeppnishæft. Svo þegar það myndi gerast tækju neytendur sig saman og hættu að versla við annað olíufélag og koll af kolli. Hreyfa við þeim aðeins. Aðgerðir bifreiðastjóra bitna auðvitað bara á venjulegu fólki í umferðinni, en þessar aðgerðir myndu bitna á réttum aðilum.

Bestu kveðjur,
Guðrún Eggertsdóttir, Bergrún Halldórsdóttir og Jóhanna Gísladóttir.

Jæja gott fólk... ég ætla ekki að versla við N1 á næstunni... MÉR blöskrar bensín og olíuverð!
Hvað ætlar ÞÚ að gera til að leggja þitt af mörkum í þessarri baráttu ??


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Jón:

Ég hef nú alltaf verslað við Atlantsolíu síðan þeir komu á markaðinn, dettur ekki í hug að versla við Shell, Olís og N1 þessa dagana :S

en gott framtak :)

10.04.08 11:08


Helga:

Ég veit ekki hvort slíkar aðgerðir mundu lækka heimsmarkaðsverð á olíu, en það er nú víst það sem stýrir hækkunum hér á landi. Þó við séum hálfeinangrað eyland þá erum við víst ekki ein í heiminum.

Ætli best væri ekki bara að leggja bílnum og fara að hjóla, sólin farin að skína og svona. Allir glaðir bara ;)

10.04.08 13:40


Gams:

Ég vildi að gæti hjólað í vinnuna, en ég nenni ekki að hjóla 80 km á dag til þess :)

10.04.08 14:44


Hanna:

Gams: Hvaða aumingjaskapur er þetta eiginlega?! :)
Helga: Svo sammála þér með að duska rykið af fáknum, ef ég bara ætti svoleiðis stykki! :S
Jón: Já ég er Olís-manneskja, versla aldrei við N1...

10.04.08 17:20


Hófý:

Þetta er ekki svo vitlaus hugmynd, annars er ég nú ekki mikið á ferðinni þessa dagana, fer kannski aðeins út að viðra mig ;)
Annars ætlaði ég bara að láta vita að ég hefði kíkt hingað inn.

10.04.08 20:10


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín