Sunnudagur 20. apríl 2008 / 02:26 / Ótrúlegt, en satt!

Þetta á sér stað á okkar tímum. Ótrúlegt!
Átján ára gömul stúlka giftist óviljug manni sem er 32 árum eldri, Býr í 5200fm húsi ásamt 7 öðrum eiginkonum hans. Sjálf er hún eiginkona númer 4. Elur honum börn, og á sama tíma eignast hinar eiginkonurnar börn með honum. Samtals feðrar hann 52 stykki.Börnin eru alin upp í hópum, sem ein stór hamingjusöm fjölskylda.
Þessi saga, sagan um það hvernig hún flýr ofsatrúarsamfélag FLDS er hjartnæm, tekur greinilega á tilfinningar hennar að segja þessa sögu. Versta er að miðað við það sem ég hef lesið fékk hún enga áfallahjálp, því henni var sagt að þær konur sem flýja frá trúarsamfélögum, fara hvort eð er tilbaka og því tekur því ekki að aðstoða þær.
Þessi kona er svo ótrúlega, ótrúlega sterk. Ætlaði að verða læknir, en maðurinn hennar ákvað að hún skyldi frekar verða kennari! Þvílík kúgun, þvílíkt óréttlæti, þvílík hetja að stinga af í skjóli nætur, bjarga börnunum átta frá því að lenda í því sama og hún lenti í. Horfið á þetta í góðu tómi og reynið að halda aftur af tárunum...


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín