Fimmtudagur 03. apríl 2008 / 14:27 / er ennþá 1.apríl?!

Er þetta ekki grín eða? Sagði manneskjan þetta virkilega!! Ég er fjúkandi fjúkandi ill. Hún er heppin að heimasíða Orkuveitunnar er ekki betri en svo, að ég fann ekki tölvupóstinn hennar því annars hefði hún fengið að lesa nokkur vel valin orð. Þetta er hvorki gleymt né grafið og mun ég virkilega hafa fyrir því að finna tölvupóstinn hennar og senda henni mína skoðun á þessu máli.
Þeir sem sjá ekkert athugavert við þessa frétt eru greinilega með svipaðar skoðanir á "landsbyggðarpakkinu" sem getur látið bjóða sér líkamsræktartæki sem eru ekki lengur "boðleg" Reykjavíkurbúum.
--- bætt við seinna ---
tölvupóstfangið hennar er: sigrun.amundardottir@or.is
og mæli ég með því að sem flestir sendi, og þá líka á or@or.is svo að aðrir starfsmenn en bara Sigrún sjái þetta. Ég persónulega ætla að krefjast þess að hún biðji íbúa landsbyggðarinnar afsökunar, opinberlega, á þessum orðum sínum.
--- viðbætur #2 ---
Jæja þá var þessi frétt að birtast á mbl.is. Spurning hvort að ritarinn hafi gloprað þess út úr sér á einhvern annan hátt og fréttamaðurinn snúið út úr orðum hennar. Eða þá að Sigrún sagði þetta í raun og veru og er núna að reyna að bjarga sér fyrir horn eftir að hafa fengið hundruði tölvupósta ffrá reiðu landsbyggðarfólki! Hvort sem þessi orð komu frá Sigrúnu eða fréttamanninum, voru þó ansi hörð og snertu illa við marga, þar á meðal mig.


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Stolti landsbyggðarpakksbúinn:

ótrúlegt!!

úff.. maður má ekki láta villast og prófa öll nýju tækin, þau gætu verið of flókin! hreinlega!

höldum bara áfram að fara út að skokka, við hvort sem er kunnum ekkert á svona apparat!

03.04.08 16:26


Alma :):

vá vá vá :), Reykvíkingarnir eru snobbaðir upp fyrir haus iiih 8) en hver þarf á líkamsrækt að halda ? borga hva ? e'ð tugi þúsunda fyrir árskort svo notar maður það svona kannski 20 sinnum á árinu, í stað þess að fara ókeypis út að skokka, í "fersku" lofti og svona :) (ekki það að ég stundi það að fara út að skokka8).)
hehe, en jam hlakka til að sjá þig sæta :)

03.04.08 23:10


Helga:

Hey hey, Reykvíkingar eru ekkert snobbaðri en aðrir Íslendingar. Það snobba allir fyrir einhverju. Fyrir utan að sú sem á að hafa látið þessi orð falla er sjálf utan af landi...

03.04.08 23:24


Svanhildur:

Tek undir með síðasta ræðumanni!

04.04.08 10:59


Mundi:

mér finnst alveg tilvalið að senda þessi tæki til Húsavíkur eða Raufarhafnar. Þar er engin líkamsræktarstöð.
Ég meina hafið þið ekki farið með gömlu fötin ykkar í rauða krossin þegar þið viljið ekki nota þau lengur? Þau eru náttúrulega alveg nógu góð fyrir einhverja svanga halanegra!! hahahhaa... :)


nei svona spauglaust. er þetta ekki eitthvað sem hefur verið rangtúlkað bara?

04.04.08 19:57


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín