Þriðjudagur 29. apríl 2008 / 14:38 / Draumaprinsinn
Eins og svo oft áður var ég að spjalla við félaga minn á MSN og tilkynnti hann mér, eftir að ég hafði kvartað um fjárhag minn, að hann ætti sko nóg af peningum, enda vinnandi maður og þar að auki á leið í utanlandsferð.
Eftirfarandi samtal átti sér stað:
---
Miss Reykjalin - Algjör tútta says:
Viltu byrja með mér?
Siggi says:
Já ekkkert mál
Miss Reykjalin - Algjör tútta says:
Okei frábært.. þá veistu að ég eignast sjálfkrafa helminginn af peningnum þínum OG ég verð að koma með í þessa ferð sko og þú borgar...það er alltaf svoleiðis sko...og ég flyt inn um helgina
og ég má skipa þér fyrir eins og ég vil!
Þú verður líka að:
Þvo og bóna bílinn minn
Nudda á mér axlirnar
Hugga mig þegar ég er sorgmædd...
Gleðja mig þegar ég er leið
Fikta í hárinu mínu áður en ég fer að sofa...
Þola mig þó ég sé í vondu skapi
Aldrei skamma mig þegar ég syng í bílnum
Siggi says:
Er að skrifa þetta hjá mer
Miss Reykjalin - Algjör tútta says:
Ok gott
Miss Reykjalin - Algjör tútta says:
Svo áttu auðvitað að tilbiðja jörðina sem ég geng á
Gefa mér blóm uppúr þurru
Færa mér gjafir þegar ég á síst von á þeim
Sækja mig niður í bæ sama hversu full og leiðinleg ég er
Halda hárinu frá andlitinu mínu þegar ég þarf að gubba
Segja mér hvað ég er sexy þegar ég er lasin
Vera til staðar þegar ég þarf á þér að halda
Ekki fara á djammið með félögunum ef ég hef ekkert að gera
Elda handa mér þegar ég er upptekin við að læra
Nudda á mér fæturnar í lok erfiðs vinnudags
Hlusta á endalausar hundasögur af hundaspjall.is
Vilja fara norður í tíma og ótíma bara af því að þér finnst fjölskyldan mín svo æðisleg!
og auðvitað elska mig mest þegar ég á það síst skilið
Siggi says:
Þetta er svakalegur listi
Siggi says:
get eg hætt við ?
---
Þannig fór um sjóferð þá og ég er ennþá einhleyp :)
--
--- Viðbót ----
Vegna fjölda athugasemda sem ég hef hlotið á MSN og í samræðum um málefnið finnst mér nauðsynlegt að taka það fram að þetta er skrifað í kaldhæðni og á enganveginn að taka (öll) atriðin alvarlega!! :)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Hehehe...góður listi sem þú hefur gert, held ég búi til svipaðan lista til þess að hafa öll atriði á hreinu;)
29.04.08 20:20
Jón:
Ekkert að því að setja smá kröfur...
svo framarlega sem þær eru endurgoldnar ;)
30.04.08 16:28
my kind of woman! :D ánægð með þig..
30.04.08 22:04



