Þriðjudagur 25. mars 2008 / 21:46 / Ísland í dag..

Fékk tölvupóst frá Baddý systir sem hljóðaði svo:
Tveir dómar sama dag á sama landinu.
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi,
þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun
gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar *sex
hundruð þúsund krónur* í miskabætur. --
----Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að
greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm
hundruð þúsund* í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af
ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6
milljónir í málskostnað.
Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?
--
Ekki nóg með það, heldur fletti ég uppá fyrri dómnum inná www.domstolar.is og fann þar allan málaflutninginn. Strákurinn er kærður fyrir:
fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og nauðgun, aðfaranótt laugardagsins 28. maí 2007, með því að hafa farið inn í íbúð við A-braut, Laugarvatni, þar sem unnusta hans, X, var gestkomandi, togað hana út úr íbúðinni og inní bifreið sem hann ók að Gjábakkavegi, dregið hana út úr bifreiðinni og slegið hana í andlit eða líkama. Síðan að hafa sett X aftur inn í bifreiðina, ekið að B-braut 5, Laugarvatni, dregið hana, m.a. á hárinu, út úr bifreiðinni, eftir möl og gangstétt og upp stiga, inní íbúð hennar á 2. hæð hússins, inn á salerni, lokað hurðinni og veist að henni þar með ofbeldi, afklætt hana og sett fingur upp í kynfæri hennar, og við það sumpart notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar, slegið hana ítrekað í andlit og líkama, m.a. hnefahöggi í andlit sem varð til þess að hún skall utan í vegg með höfuðið. Hlaut X glóðarauga og mar, rispur og bólgur í andlit, mar á enni og á höfði, eymsl í hársvörð og skrámur og mar víðs vegar um líkamann."
---
Ekki nóg með það heldur skylst mér á því sem ég las þarna inni að þessi drengur ætlaði að flytja til stúlkunnar viku seinna - og varð því virkilega sár, skiljanlega, þegar hann gengur inná hana í faðmlögum við annan mann. Hann nánast dregur hana útúr þeirri íbúð því hún var of drukkin til að ganga sjálf. Fer með hana í íbúð hennar og hjálpar henni í sturtu, þar sem
"Hann hefði skrúfað frá sturtunni og þrifið kæranda. Ákærði kvaðst hafa misst algjörlega stjórn á sér inni á salerninu... og hann hafi því slegið kæranda ítrekað án þess að muna nákvæmlega hvernig hann gerði það"
---
Ég er hreint út sagt orðlaus. Þvílík vitleysa. Það á enginn skilið að vera dreginn á hárinu, lamin til óbóta í sturtunni og margir mun verri hlutir. HVAR ER UPPELDIÐ?!


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín