Fimmtudagur 20. mars 2008 / 15:46 / Frelsið er yndislegt..
... ég geri það sem ég vil!
---
Það má með sanni segja að ég sé frjáls þessa stundina. Ingi á sjó (einhversstaðar leengst í burtu), Baddý sys hjá GS inná Akureyri, mamma og pabbi á leið til Prag þessa stundina og meira að segja Píla er stungin af uppí Mývatnssveit og dvelur þar í góðu yfirlæti yfir páskana. Núna get ég gert allt sem mig langar til!... Nægur friður til að læra, gera ritgerðir, skattaskýrsluna sem er nú meira vesenið, hitta vini og kunningja og skemmta sér á Kaldbaknum á morgun!
Ég verð nú samt að viðurkenna að það er hálf einmannalegt hérna á Hauganesinu í augnablikinu. Snjóbylur úti og ég var 45mínútur frá Akureyri núna uppúr hádeginu. Gaman gaman! Það á nú samt að létta til og á morgun verður geeeeggjað uppá Kaldbaknum!!! Hlakka svo til að það ískrar í mér.
---
Annars er mest lítið í fréttum af mér, en þeimur meira að gerast á mbl.is. Íslenskan krónan hefur aldrei verið veikari og ekki laust við að maður fái svona heimsenda-hroll niður bakið þegar Elín "hin dramatíska" Hirst les upp öll hruninn í kauphöllinni í kvöldfréttunum.
Verra þykir mér þó myndbandið frá Osama Bin Laden. Horfði á það áðan og náði svona helmingnum. Furðurlegt nokk, þá var ég sammála ýmsu sem hann sagði. Auðvitað erum við engu skárri að senda herlið til Írak. Herlið sem drepur fleiri konur og börn en nokkurntímann hryðjuverkamenn. Hermenn sem nauðga, sprengja og kvelja saklausa borgara. Ekki nóg með það, heldur hæðumst við að trú þeirra og birtum skopmyndir í þekktum dagblöðum. Ég skil hann vel að vera kominn með uppí kok á okkur vesturlandabúum. Við þurfum stundum að líta í eigin barm og átta okkur á því að kannski erum við engu skárri en hryðjuverkamennirnir.. við framkvæmum bara öðruvísi.
---
Útí annað. Íbúðarleit á Reyðarfirði/Eskifirði yfir sumarið gengur rólega. Auglýstum í Austurlands-dagskránni í gær og fengum dræm viðbrögð. Það kemur þó vonandi fyrr en seinna og ég hef voðalega litlar áhyggjur af því að fá ekki vinnu eða húsnæði þarna á svæðinu. Þetta reeeddast. Þetta kemur í ljós... sjáum nú bara til... ohh þessar setningar geta gert mig gráhærða! Ég vil helst að allt gerist í gær, en þolinmæðin er nú ekki mín helsta dyggð. Verð þó alltaf þolinmæðari og þolinmæðari með árunum sem líða.
---
Jæja. Búin að gera það sem ég get gert í skattaskýrslunni og núna er það bara ritgerðarvinna sem bíður handan við hornið. Jej!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
hæ skvísa
takk fyrir gærkvöldið! skemmti mér óendanlega vel :D þetta var megastuð! :D
en verðum í bandi skvísa :P
24.03.08 00:14



