Sunnudagur 16. mars 2008 / 23:27 / Þetta er nú meira hundalífið!
Fór á hundadaga í Garðheimum um helgina. Stórhundadagar réttarasagt. Þvílík snilld. Ohh, tveir hundar þarna sem ég er alveg dying for. Langar rosalega mikið í Giant Schnauzer eða Briard. Eeeenn það kemur að því seinna meir að maður fjárfesti í fokdýrum sýningargrip sem fær ekki að dýfa loppu í kalt vatn, því það gæti auðvitað skemmt dýrmætan feldinn og þar fram eftir götum ;)
Annars passaði ég fyrir Söndru og Sverri á föstudag/laugardag. Börnin þeirra eru svo yndisleg. Jón Pétur reyndi frekar mikið á þolraunin hjá mér um kvöldið, en steinsofnaði þegar ég fór að sofa. Greinilega bara vantað eitthvað hrjótandi þarna í rúminu við hliðiná sér - ekki vanur því að hafa svona hljótt í kringum sig, hehehe.
Annars gengur lífið sinn vanagang. Skólinn alveg á milljón, sambúðin með Jóa gengur fínt, og ég flaug norður í gær. Damma mín sótti mig á flugvöllinn (takk beibí) og snæddum við pizzu saman í rólegheitunum. Kisinn hennar er algjört krútt (þó mér sé innilega ekki vel við kettlinga) og fær hann 10 stig fyrir prúðleika, og fyrir að klóra mig ekki.
Jæja. Best að fara í bólið. Þarf ýmislegt að brasa á morgun, eins og t.d. að sækja um fleiri sumarvinnur - verður nú að vera vel úthvíldur fyrir svoleiðis símtöl.
Góða nótt allir og takk fyrir góð viðbrögð við færslunni minni hérna á undan. Er ekki frá því að ég skelli þessu á eitthvert dagblaðið við tækifæri :)
Þessi færsla er skráð í flokknum



