Laugardagur 16. febrúar 2008 / 23:52 / Þriggja barna móðir í Kópavogi

Í dag og fyrripartinn á morgun er ég einstæð, þriggja barna móðir. Ég er hinsvegar svo heppin að börnin "mín" eru einstaklega vel upp alin þannig að þetta er nú mestpartinn yndislegt :)
Ég er s.s. búin að fá að finna fyrir því hvernig það er að eiga þrjú börn með öllu því sem fylgir, matartímar, háttatímar, drífa sig út-tímar og svo mætti lengi telja.
Verð nú samt að viðurkenna að mér finnst nú ekkert leiðinlegt að elda fyrir þessa gríslinga, gefa þeim að borða, svara heimspekilegum spurningum frá Kristófer eins og t.d. "Hvað er sólin heit?" og "Hvað þekur sjórinn mikið af jörðinni?" og "Veist þú hvað það eru margir sykurmolar í kókómjólk?!"
Jón Pétur segir "neejj" við flest öllu, eins og t.d. þegar ég ætlaði að klæða hann í skóna snéri hann enninu í vegginn og sagði bara "nej!" og þóttist vera í felum. Þvílíkt rassgat. Katrín er auðvitað yndisleg á sinn einstaka hátt. Hlær að aulagangnum í okkur hinum og berst við að troða sér hvar sem hún kemst. Lagðist flöt í sófann í kvöld, og skellti löppunum uppá öxlina á mér, þegar ég ýtti þeim niður og sagði svona "æjh, Katrín mín... plís!" þá sprakk mín bara úr hlátri og veltist nánast framúr sófanum. Algjört æði.
Þegar ég lagði Jón Pétur í rúmið rétt rúmlega 9 í kvöld var hann ekki lengi að lognast útaf. Katrín sömuleiðis. Krissi mátti vaka eins lengi og hann vildi, og var steinsofnaður yfir Men In Black klukkan 10. Þegar ég ýtti við honum kl 11 fékk ég bara svarið: "En þú sagðir að ég mætti vaka eins lengi og ég viii..." og þá sofnaði hann aftur.
Ég get ekki annað sagt en að Sandra og Sverrir eru ótrúlega rík.


Þessi færsla er skráð í flokknum vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

Dóri:

Er semsagt ekki farið að styttast í að þú farir að punga út nokkrum krógum? ;)

17.02.08 17:39


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín