Fimmtudagur 14. febrúar 2008 / 23:36 / Rvk - Djúpivogur - Reyðarfjörður - Rvk

Ohh það er svo svekkjandi að vera búin að blogga mikið þegar allt dettur út. Reyndar er ég svo heppin að þurfa ekki að kljást við blog.central leiðindi, en í kvöld datt netið út og allt hvarf, ég ákvað í framhaldi af því að skella mér í smá leikfimi og slökkti bara á tölvunni, en var búin að steingleyma blogg-copy-paste-inu mínu þannig að... allt horfið.
Reyni að byrja uppá nýtt þó það verði vafalaust ekki jafn æðislegt og frumbloggið.
---
Á þriðjudagsmorgun fékk ég símhringingu frá Inga sem var kominn í land. Ég stökk á fætur og henti ofaní tösku því allra nauðsynlega (sem endaði að sjálfsögðu í ofurtroðinni ferðatösku ala-Hanna) og brunaði sem leið lá í skólann þar sem tíminn virtist standa í stað í 80 mínútur. Alltaf jafn ánægjulegt að mæta á flugvöllinn og borga skítnar 7000kr rúmlega fyrir HOPP... aðra leið! Æðislegt að láta taka sig svona í ósmurt. En ferðin var ljúf og vonandi þakka forstjórar Flugleiða mér kærlega fyrir, í huganum, þegar þeir borða andasteikina í 1000fm villunni sinni á Seltjarnarnesinu og klóra sér svo sælir í jakkafatabumbuna.
Allavega. Lendingin á Egilsstöðum var ágæt að vanda, nema hvað að ég er alltaf skíthrædd um að enda í Lagarfljótinu. Finnst þeir fljúga svo helvíti lágt! Enda er ég farin að taka uppá því að sofa bara þangað til ég finn hjólin lenda í malbikinu.
Ingi sótti mig og við fórum á smá rúnt, sinntum nokkrum erindum á Egilsstöðum og lögðum svo í langferð til Djúpavogs þar sem ég bölvaði hverjum firðinum á fætur öðrum. Samt fallegir firðir, en vegakerfið eitthvað að klikka þarna á austurhorninu. Stendur víst allt til bóta samt sem áður. Alltaf jafn svekkjandi að horfa yfir Berufjörðinn á Djúpavog.. og keyra svo í ca hálftíma inn fjörðinn og út aftur áðu en maður kemst þangað. Við fórum síðan á Reyðarfjörð í gær og gistum hjá bróðir hans og fjölskyldu. Indælisfólk og færi ég þeim bestu þakkir fyrir gestrisnina!
Í dag sótti ég strákana á hlaupum á leikskólann þar sem Ingi hringdi úr skipinu og tilkynnti brottför!! Ég gaf allt í botn og keyrði á fleygiferð (samt undir löglegum hraða þar sem mér finnst ég alltaf taka allann veginn á þessum risa-jeppa!) til Eskifjarðar til að smella kossi á manninn áður en hann færi á loðnuveiðar. Eftir þessa kveðjustund héldum við strákarnir aftur til Reyðarfjarðar, lékum okkur í smá stund saman (aðallega dunduðu þeir sér í Peekaboo Farm sem vakti mikla lukku!) og svo hélt ég aftur suður á bóginn þar sem raunveruleikinn tók við með viðeigandi skólabókum, starfsnámi, stuðningi og liðveislu!
---
Búin að skila einni ritgerð, ein verklýsing komin í hús og bara tvær ritgerðir eftir og eitt risastórt aðferðafræðiverkefni. Ekkert mál að vera í skóla...


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

alma :):

jájá :), alltaf gaman að sjá nýjar kærustur hehe :), en jam æðislegt að fá þig í heimsókn :) vonandi hitti ég þig sem fyrst aftur =) (alltaf gaman að fá óvænta gesti) haha.

Heyrumst =]
Alma Eiðsdóttir.

15.02.08 00:04


jamm:

...
:/
takk fyrir allt og bless...

15.02.08 05:43


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín