Þriðjudagur 19. febrúar 2008 / 00:21 / Martröđ!
Ég vaknađi upp viđ slćma martröđ í nótt. Já bókstaflega. Slćm martröđ. Svaf mjög illa og vaknađi trekk í trekk ţegar eitthvađ slćmt gerđist í draumaheiminum. Ţetta var svona martröđ sem eltir mann, ţiđ vitiđ, svona ţar sem mađur sofnar aftur og heldur áfram ađ dreyma sömu vitleysuna! Ţetta endađi ekki betur en svo ađ ég vaknađi rétt rúmlega 5 í nótt međ tárin í augunum og öskriđ á vörunum. Já "vondi karlinn" var ađ fela sig inní fataskáp og kíkti útúr honum međ ógeđslegt augnaráđ og glott á vörum.
Ég barđist viđ tárin (og öskriđ sem vildi sleppa út) ákvađ ađ taka mig saman í andlitinu og haga mér eins og sú fullorđna og ţroskađa manneskja sem ég er.... svo ég tók upp símann og hringdi í Jóa.
Ég ţorđi ekki fyrir mitt litla líf frammúr, ţannig ađ Jói kom međ koddann sinn yfir til mín og steinsvaf viđ hliđ mér... á međan ég starđi útí loftiđ og reyndi ađ hugsa um hamingjusamar stundir í lífi mínu. Ađ lokum heimsótti Óli Lokbrá mig og dreifi yfir mig svefn-dufti og ég svaf vćrt og rótt. Vaknađi samt viđ ađra martröđ. Sú var víst í raunveruleikanum. Síminn (ţessi elska) varđ straumlaus í nótt svo ađ hann hringdi ekki klukkan 10 eins og hann átti ađ gera, heldur steinsváfum viđ fram ađ hádegi!! Enginn skóli í dag svo ţetta slapp.
--
Ég vona heitt og innilega ađ í nótt dreymi mig regnboga og blóm...
Ţessi fćrsla er skráđ í flokknum Lífiđ. Ţar eru 170 fćrslur.



