Þriðjudagur 26. febrúar 2008 / 13:45 / lasin :(

Það er allt búið að ganga á afturfótunum hjá mér í gærkvöldi/nótt. Prófið í morgun tókst ekki betur en svo að ég varð lasin í gærkvöldi, ældi tvisvar, skalf svo eins og hrísla í vindi, skreið uppí rúm og svaf alveg hrikalega illa í nótt - svitnaði eins og svín og velti mér þúsund sinnum fram og til baka því allar stellingar voru vondar sökum beinverkja. Vaknaði kl hálf 7 og lá kjökrandi þangað til íbúfenið fór að virka, og þá loksins náði ég almennilegum svefni.
þannig fór um sjóferð þá og ég fæ 0 á þessu hlutaprófi, sem er ansi svekkjandi þar sem ég byrjaði að læra undir það á fimmtudaginn, og fékk aukakennslu og allt í gær. En jæja. Það þýðir ekki að gráta Björn bónda og núna verður maður að horfa jákvæðum augum fram á veginn. Tek næsta hlutapróf bara með trukki ;)
---
Gunnar Smári hennar Baddýjar systur fékk Rúfus lánaðann í gær og tók hann heldur betur í gegn, smurð'ann, bónað'ann, þreif'ann, pússað'ann, lagaði "sprungna" hátalarann sem var víst bara svona rykugur hehe, úbbs! og tengdi græjurnar uppá nýtt.. Núna keyri ég um með græjurnar í botni á nýbónuðum bílnum. Eða nei annars, ég tími því varla því hann verður allur í salti!! Tek bara strætó þessa vikuna ;)
---
Búin að bóka mér flug austur og þar bíður systir mín blísperrt eftir mér. Hún er að vinna á sjúkrahúsinu á Norðfirði þessa dagana og fæ ég að berja hana augum eina kvöldstund eða svo, því á föstudaginn fer hún norður, og ég fer svo suður á sunnudaginn, vonandi með Inga og strákunum hans.
---
Jæja, ætla að reyna að koma ofaní mig smá matarbita. Matarlystin ekki búin að vera uppá marga fiska í gær og í dag, en ég er alveg að leka niður úr orkuleysi. Best að fá sér líka rautt kók svona fyrir sálartetrið.
---
Langar að koma með smá gagnrýni. Kíkti á heimasíðuna hans Bubba Morthens og þætti vænt um að vita hvort að kóngurinn sjálfur sé að skrifa þarna inn. Hrikalegt þegar það er ekki einu sinni hægt að skrifa "Villi í Naglbítunum" og "símakosning" rétt! (þó síma"kostning" sér reyndar frekar fyndið!) Agalegt á svona "opinberri" síðu sem fær örugglega mörg hundruð flettingar á dag. - Biðst afsökunar á þessari fullkomnunaráráttu, einhver Freyja í mér þessa stundina hehe


Þessi færsla er skráð í flokknum skóli. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

Gams:

hahah snilld að lesa síðuna hans Bubba, það er annað hvort eins og einhver krakki hafi skrifað þetta eða útlendingur.

"Þessi hluti þáttanna sem er í beinni útsendingu mun verða með öðru sniði en fyrst þriggja þáttanna. Nú er keppast um að komast áfram en í hverjum þætti mun þó einn keppenda sendur heim"

26.02.08 15:31


baddy systir:

bíddu ætlaru þá að kíkja til mín í pizzahlaðborð á hótel egilsbúð eða...??

26.02.08 19:14


svanhildur:

ég ætla að segja þér sögu..
ég þoli ekki svona villur.. bara ÞOLI þær ekki.. það kenndi mér kennari á síðustu önn í kjánalegasta áfanga í heimi - svona áfangi þar sem okkur er kennt að vitna í hluti og gera heimildaskrá og svona - ugh.. ég þoli varla að hugsa um þetta án þess að fá kjánahroll!
allavega.. ég skilaði inn verkefni sem var upp á 9 að kennarans mati - og þær villur sem hún lagaði voru þrjár - allt sama orðið.. 'kosningar' (eins og ég skrifaði orðið) var leiðrétt yfir í 'kosTningar' ..ég emjaði úr hlátri! ..og ég var dregin niður um heila einkunn afþví að ég skrifaði orðið rétt..? whaaaa?
ugh.. villur.. uuuuugh!
vona að þú hafir það gott.. flensan heimsótti mig á sunnudaginn og ég hef ekkert farið í skólann þessa vikuna - missti af prófi á þriðjudaginn og verkefnaskilum í dag.. ég hreinlega EEEELSKA þetta - svo gaman að liggja á sófanum og væla allan daginn af beinverkjum og kvefi, hausverk og ógleði :S
knús

28.02.08 20:02


freyja:

Ekki verra að fá smá freyju-anda yfir sig. Ég þori ekki að skoða síðuna hans. Ég fór á fund um daginn og gretti mig, alveg óvart, vegna þess að það stóð "og þar með líkur þessari umfjöllun" eða eitthvaði í þá áttina..... mér leið svona eins og einhver hefði verið að keppa í stórsvigi og dottið illa. Gretti mig og saup hveljur. Reyndi að hafa þetta eins hljóðlaust og ég gat. Maður má kannski ekki vera svona anal yfir þessu ;)

Láttu þér nú batna og ekki hræðast rauða kókið, það gerir manni gott þegar maður þarf sykurvatn í líkamann.... reyndar kemur það örsjaldan fyrir að maður "þurfi" það en eftir veikindi er það í lagi.
Hafðu það gott!!!!

Svansa, snilld með þetta orð, það er að flækjast fyrir mörgun, fannst þér ekki æði að leiðrétta þetta?

29.02.08 00:32


Gunni Örn:

Bubbi er samt lesblindur, bara svona svo þið vitið:)

29.02.08 10:00


Hanna:

Gott að vita að maður er ekki eina manneskjan sem er svona anal hehehe. Gunni: Mér er skítsama þó að hann sé lesblindur, þeimur betri ástæða fyrir því að fá einhvern til að lesa þetta yfir áður en hann ýtir á "publish" :)
p.s. geðveikt að sjá hvað fólk er dugleg að lesa bloggið mitt! Djöfull á ég frábæra vini!

29.02.08 22:50


Guðrún Veiga:

Neinei kóngurinn er ekki lesblindur - hann er skrifblindur að eigin sögn. Ég get einmitt ekki lesið bloggið hans, finnst villurnar þarna svo kjánalegar að ég gubba næstum yfir lyklaborðið. En mér finnst hann samt totally sexy sko ;-)

02.03.08 11:02


freyja:

Hvað þýðir "þeimur"? ;)
Þýðir það "þeim mun"?
Já, kvöl og pína að vera anal...

Það má alveg gera villur á bloggum og svona, hins vegar ekki að sjást villur í auglýsingum og fjölmiðlum þar sem ætlast er til að prófarkarlesarar sinni vinnunni sinni. Eins pirrast ég á vitlausri orðaröðun (það var sagt mér að .....) og mjög hvimleiðri fegðurðarsamkeppna-setningu..... "hún kemur frá Keflavík" Er verið að meina að í dag brunaði hún frá keflavík, þar sem hún var að heimsækja frænku sína, til að ná keppninni? Eða er hún frá keflavík. Ykkur er frjálst að nota hvaða bæjarnafn í staðinn fyrir Keflavík... bara datt það í hug.

Ég þarf svo að blogga (eins og fólkið í áramótaskaupinu) um það þegar móðir mín fór í herrafataverlslun hér í bæ og er líklega illa liðin af unga manninum sem hún leiðrétt í gríð og erg. Henni er sama frúnni því að hún telur að hann muni framvegis tala rétt mál.
Eplið féll nú ekki langt frá eikinni.
Ok, ég ætla að hætta að skrifa.... þetta er þitt blogg Hanna, ekki mitt ;)

03.03.08 23:54


Fjóla:

Sæl Jóhanna
Takk kærlega fyrir Hörpu þú ert algjör engill af himnum ofan. Hér sit ég heima með Sigríði Eddu sem er með ælupesti eins og þú. Vonandi ertu búin að jafna þig. Kveðja Fjóla og allir hinir.

05.03.08 13:13


sandra:

endalaus djöfulsins frekja alltaf á þessum bæ en á ekkert að fara að blogga.. maður á því ekki að venjast að það líði svona langt á milli ( er þetta í réttri setningaröð? eru nokkuð stafsetningavillur?) haha
kveðjur úr bælinu
p.s þarf að fara að negla niður eins og eitt kvöld í pössun ;)

06.03.08 18:07


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín