Fimmtudagur 07. febrúar 2008 / 10:45 / Fáránlegt!
1. mars á síðasta ári fengum við í Leikskólanum Krummafæti slæmar fréttir. Presturinn okkar, hann Pétur Þórarinsson í Laufási lést þá um nóttina/morguninn. Nú er að verða komið ár frá andláti hans. Í dag fékk ég e-mail frá Ástu í Höfða, sveitung Séra Péturs. Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að birta þetta bréf, ásamt fundargerð frá sveitastjórn Grýtubakkahrepps. Áhugaverð lesning og ekki laust við að maður fyllist reiði við að lesa þvílíkt óréttlæti Þjóðkirkjan er að beita þegnum sínum.
Baráttukveðjur sendi ég til Hóbbu og Þórarins um leið og ég þakka þeim kærlega fyrir allan þann tíma sem ég fékk að eyða í Laufási við hin ýmsu sveitastörf, þó aðallega sem áhorfandi :)
- Smellið á "framhald" til að lesa bréfin -
3. Bréf frá Kirkjuráði dags. 23. janúar 2008.
Kirkjuráð er að tilkynna bókun sem gerð var á fundi þeirra 13. desember 2007 varðandi búsetu í Laufási í Grýtubakkahreppi. Jón Helgi vék af fundi meðan þessi liður var ræddur. Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi bókun:
„Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps lýsir yfir miklum vonbrigðum með samþykkt Kirkjuráðs frá 13. desember 2007, og afgreiðslu stjórnar prestssetra þann 25. janúar 2008, varðandi málefni Laufáss. Kirkjuráð beinir því til stjórnar prestssetra að Þórarni Inga Péturssyni verði boðið að leigja jörðina, án hlunninda, í 4 ár en með því skilyrði að Þórarinn fjarlægi íbúðarhús sitt af jörðinni í vor.
Sveitarstjórn telur að hér sé um að ræða óaðgengilega afarkosti fyrir ábúendur Laufáss og óttast mjög um áframhaldandi búrekstur í Laufási. Það er að mati sveitarstjórnar afskaplega undarlegt að Þórarni sé boðin leiga á jörðinni en verði að fara með íbúðarhúsið í burtu á sama tíma. Sveitarstjórn beinir því til stjórnar prestssetra að Þórarni Inga Péturssyni verði boðinn lengri leigutími og að íbúðarhúsið fái að standa út leigutímann. Þá vill sveitarstjórn minna biskup Íslands og stjórn prestssetra á að vilji sóknarbarna í þessu máli er afar skýr, sbr. undirskriftalista þann er biskupi var afhentur þann 18. október 2007.“
---
Tekið af www.grenivik.is undir fundargerð - sveitastjórn, 4.febrúar 2008.
---
Opið bréf til biskups Íslands, séra Karls Sigurbjörnssonar
Komdu sæll Karl,
Eins og þér er kunnugt urðum við íbúar Laufássóknar fyrir þeim mikla missi að sóknarpresturinn okkar, séra Pétur Þórarinsson, lést á síðasta ári. Péturs verður lengi saknað enda var þar á ferð einstakur maður sem margir dáðust að og sóttu styrk til.
Í Laufási hefur verið rekinn myndarbúskapur síðan séra Pétur flutti þangað með fjölskyldu sína. Þeir feðgar hafa verið sérstaklega öflugir í hverskyns félagsstarfi og því samstarfi sem sauðfjárbændur þurfa að hafa með sér. Jörðin hefur verið bætt umtalsvert og aukið við hlunnindi hennar. Ekki er hægt að segja annað en staðurinn hafi blómstrað í höndum þeirra. Inga í Laufási hefur unnið að því hörðum höndum með Minjasafninu á Akureyri að hefja gamla bæinn í Laufási til vegs og virðingar, þar er nú rekin öflug ferðaþjónusta þar sem tugþúsundir gesta koma við á hverju ári. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með allri þeirri uppbyggingu og lífi sem verið hefur í kringum Laufásfólkið síðustu árin. Að sama skapi er það dapurlegt að verða vitni að tilraunum þröngs hóps innan prestastéttarinnar að bola fjölskyldu séra Péturs burt úr Laufási. Þú mátt líta á þetta bréfkorn sem ákall til biskups um að koma í veg fyrir slíkar tilraunir.
Svona lítil samfélög eins og okkar þola það illa þegar sterkum stofnum er svipt í burtu. Samfélagi sauðfjárbænda blæðir þegar yngsti bóndinn með stærsta fjárbúið er skorinn við stokk. Þetta vitum við sem búum á svæðinu, við vitum hversu mikilvægur hver einstaklingur er fyrir heildina. Það er algjörlega óskiljanlegt hvað þessum hópi gengur til, en við sveitungarnir eigum bágt með að trúa því að allir limir þjóðkirkjunnar dansi eftir sama höfði hvað þetta mál varðar. Laufásprestakall er orðið svo stórt að prestur hlýtur að eiga bágt með að reka búskap samhliða preststarfinu, hvað þá viðlíka stórbú og er á staðnum núna.
Í haust gekk undirskriftarlisti hér um sóknirnar sem nú tilheyra Laufásprestakalli. Þar var biskup beðinn að sjá til þess að fjölskylda séra Péturs gæti fengið jörðina leigða og stundað þar áfram búskap og ferðaþjónustu, þrátt fyrir að nýr prestur kæmi í Laufás. Á listann rituðu nöfn sín 97% þeirra sóknarbarna sem náðist til, og þessi listi hafnaði inni á borði hjá biskupi. Viðbrögð kirkjunnar voru að bjóða Þórarni og Hólmfríði kosti sem vonlaust er að ganga að; leigja í stuttan tíma gegn því að þau fari með íbúðarhús sitt af jörðinni nú í vor. Hvaða vit er í því að leigja jörðina og fara burt með íbúðarhúsið? Þetta eru afarkostir, ekki hægt að líta á þetta “kostaboð” öðruvísi en hreint afsvar. Ætlar þjóðkirkjan í alvörunni að horfa svona gjörsamlega framhjá vilja þegna sinna? Kannski er þetta vitlaus spurning, rétta spurningin er náttúrulega: er þjóðkirkjan til fyrir fólkið eða er fólkið til fyrir þjóðkirkjuna? Ef þjóðkirkjan er ekki fyrir fólk og hlustar ekki á sóknarbörn sín, þá get ég ómögulega skilið að þau sömu sóknarbörn eigi lengur samleið með þjóðkirkjunni. Ég þykist vita að sama hugsun bærist í brjósti sóknarbarna séra Péturs. Í fyrsta skipti í 13 ár sé ég eftir því að hafa gengið úr þjóðkirkjunni, ég myndi svo glöð ganga úr henni aftur núna, Laufásfólkinu til stuðnings.
Illa heiðrar kirkjan minningu séra Péturs með því að neyða fjölskyldu hans burt úr Laufási. Það er nöturlegt að hugsa til þess að öll þau fögru orð sem biskup og prestastéttin viðhafði við andlát Péturs skuli nú vera gleymd, og grafin með honum.
-
Ásta F. Flosadóttir
Höfða I, Grýtubakkahreppi
astaogkeli
---
tekið af: http://astaflosa.blogspot.com/ þann 7.febrúar 2008.
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.
/ Álit
Heyr-heyr!
Úff, ég ætla ekki að fara að segja skoðanir mínar á þessu máli hér, en þetta er bæði sorglegt og svekkjandi.
En mikið er alltaf gaman að lesa bloggið þitt Jóhanna - er ábyggilega búin að segja þetta áður :) Best er að opna ekkert síðuna í einhverja daga, eða vikur, þá er nóg fyrir mig að lesa ! Ég les ekki bækur - ég les bloggið hennar Jóhönnu !! :D Þó ég hafi ekki nokkurn áhuga á hundum !!
Bestu kveðjur -
hkh.
10.02.08 10:05



