Miðvikudagur 02. janúar 2008 / 16:29 / Uppskriftir -- DK

Það er svakalega gaman hérna í DK. Í augnablikinu er ég að undirbúa sjávarrétta Risotto og Baddy að ganga frá þvotti - voða heimilislegt :) Aðrir fjölskyldumeðlimir eru hjá Vibekku og Hans í heimsókn (vinafólk mömmu og pabba sem búa í Nim)
Annars ætla ég nú ekkert að skrifa neitt svakalegt heldur skella inn smá uppskriftum sem ég gruflaði upp hérna í risastóra uppskriftasafninu hennar Dagnýjar systur. Nammi namm.. Kannski þið prófið?? Ath að uppskriftirnar miðast við tvo :)


Tofu með hvítlauk og pestó
Tofu - 1/2 pakki (250gr) --- Eða kjúklingur/pasta
Blandað grænmeti - ca 2 bollar ---- eða t.d. tómatar, gular baunir og paprika
Hvítlaukur - 4 geirar/rif --- eða t.d. laukur, hvítlauksduft
Pestó - 4 msk (grænt eða rautt / jafnvel heimalagað)
Tómatpure - 2 msk (eða ein svona lítil dolla) --- pastasósa, maukaðir sólþurrkaðir tóm.
Ólífur - Handfylli --- eða sleppa þeim
Balsamedik - 2 msk --- eða aðrar edikstegundir, sítrónusafi / eða sleppa alveg
Paramesanostur ---- eða sleppa
Aðferð:
Hella vatninu af tofuinu og láta standa á disk undir einhverju þungu (t.d. brauðbretti) í 3-5 mín til að losa vatn úr því, eða þurrkaðu þa bara vel með eldhúspappír.
Skera í litla teninga
Kreista hvítlaukinn og steikja hann í olíu á meðalheitri pönnu í 2-3mín. Bættu því næst grænmetinu út á pönnuna og hækka hitann og hræra í aðrar 2-3mín. Lækka hitann og setja tofu, pestó, tómatpurré, ólífu og edik út í. Krydda með pipar og hræra þar til allt er vel heitt. Gott að bera fram með paramesanosti.




Pasta með Ólífupestó
Tagliatelle - 200 gr eða annað pasta
Sveppir - hálft box eða 125gr - má líka nota annað grænmeti
Hvítlaukur - 3 rif / geirar
Svartar eða grænar steinlausar ólífur - ein dós
Chilialdin hálft eða chiliduft/cayenne pipar/tabascosósa
Smjör - 4-5msk (eða holla góða olían hehe)
Paramesanostur
Aðferð
Sjóða pastað skv. leiðbeiningum
Steikja smátt skorna hvítlauk og sveppi á pönnu í olíu/smjör.
Þegar sveppirnir eru orðnir mjúkir þá setja þá í matvinnsluvél ásamt ólífunum og mauka. Setja þá blönduna aftur útá pönnuna ásamt chili-inu, salti og pipar og steikja í smá stund. Þegar pastað er tilbúið þá hella því útá pönnuna og hræra allt saman. Borið fram með olíu og paramesan osti og gott að hafa salat með.




Mexicovitleysa fyrir mexico-félagið góða í Mávahlíðinni hehe
Réttur 1.


Tortillakökur - 4-8, fer eftir stærð
Salsasósa - 1krukka
"Refried" Baunir - 1 dós (eða nýrnabaunir, chilibaunir)
Avakadó 1 stk - eða tilbúin guacamole
Tómatar - 2-3stk
Laukur - 1 stk
Riinn ostur (að vild)
Sýrður rjómi - 1 dós (eða hrein jógúrt)


Aðferð
Setja baunir, smátt skorið avacado (eða guacamole-ið) og lauk í eldfast mót. Dreifa salsasósu yfir og setja síðan rifin ost efst. Inní ofn við 200°c í ca korter eða þar til osturinn er bráðnaður og blandan farin að malla. Bera síðan fram með Nachos / Doritos, sýrðum rjóma, salati og volgum tortillakökum. Hver fyrir sig setur blönduna og annað meðlæti inní kökurnar og brýtur síðan kökurnar saman eftir kúnstarinnar reglum sem ég held að flestir kunni nú þegar svona tortillakökur eru annars vegar.




Réttur 2.
blanda saman baunum, olífum, smátt skornum chillipipar, lauki og tómötum og krydda með cummin. Setja muldar nachosflögur á botnin á eldföstu móti og baunablöndu og tilbuna ostasósu þar ofaná - endurtaka þar til mótið er orðið fullt. Baka svo í ca 20mín.




Ekki svo gleyma því að það er ótrúlega gott að setja tortillaköku á meðalheita pönnu, setja ost inní hana og aðra ofaná og steikja síðan á hvorri hlið þangað til osturinn er bráðnaður. Skera svo kökurnar í pizzasneiðar og bera fram með sýrðum rjóma/salsa sósu eða einhverjum góðum mexico-rétt :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

mundi:

MMMmmm.... mann langar bara að koma í mat... ;) bestu kveðjur til ykkar allra

02.01.08 17:32


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín