Miðvikudagur 23. janúar 2008 / 18:25 / Nóg að geeera
Vá hvað það er nóg að gera hjá mér þessa dagana. Er á fullu í skólanum, ritgerðarvinnu, verkefnavinnu, með Katrínu mína (mætti samt vera oftar þar hrmm) og svo var ég í dag að byrja í starfsnámi í Frostaskjóli. Þar verð ég ca 2 daga í viku fram að páskum við að kynna mér starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar. Leist rosalega vel á hópinn þarna, hitti reyndar voðalega fáa krakka, en starfsmennirnir eru fínir. Meira að segja einn Akureyringur/MA-ingur (allstaðar leynast þeir víst!)
----
Jói og ég erum búin að liggja í hálfgerði pest, ég fyrst - svo Jói. Fyrst þjónaði hann mér meðan ég lá í sjálfsvorkun með nefið og hausinn fullann af hori, hálsinn fullann af kítli (óþolandi) og "svo illt í húðinni" að það var erfitt að skipta um föt! Þess vegna hélt ég mér bara í náttfötunum ;). Núna þjóna ég honum og ætla því að færa honum kvöldmat í rúmið. Hann kvartaði áðan undan nammileysi.. en vildi samt ekki að ég færði honum nammi því hann sagðist ekki hafa gott af því. (Óli & Dagný! Ég hef ekki borðað nammi né drukkið gos síðan miðnætti 13janúar hehe) Þannig að ég færði karlinum bara svona orku-heilsu-nammi-stöng og vakti það mikla lukku :)
------
Fór í gær í heilsuleysinu mínu með Aníku (sem betur fer, toppstykkið ekki að gera sig í gær - Takk elskan fyrir hjálpina!) að brasa útum allan bæ, sótti afmælisgjöfina hennar Mömmu (úúú forvitinn fær ekki að vita!) og kíkti í rúmfó og fjárfesti mér í einu stykki skrifborði. Komum seinna að því.Skrapp síðan í Bónus, keypti íslenskt nammi handa fólkinu mínu í CA --- Loksins hafði ég það að senda pakkann út!! Ætlaði víst að senda hann ...hrm.. í nóvember!! Úbbs. Sendi líka smá gúmmelaði til Nicks. Vonandi verður karlinn ánægður með það ;) Kolla - endilega láttu mig vita hvað honum finnst!
------
Aftur að skrifborðinu. Þeir sem þekkja mig vita hvað ég er innilega, ótrúlega, enganvegin þolinmóð þegar kemur að einhverju nýju. Allt á helst að gerast í gær. Þannig að mér tókst auðvitað ekki að bíða eftir því að Jói yrði búinn að vinna ... og byrjaði að setja saman skrifborðið með dyggri aðstoð Aníku. Það gekk hálfbrösulega þar sem leiðbeiningarnar voru bara ein bls! Jább góðir gestir - Ein blaðsíða!! Ikea vinnur klárlega Rúmfó þegar að þessu kemur. Þegar kom að því að setja borðplötuna á - klikkaði eitthvað í hausnum á okkur og við snérum skrúfunum öfugt (hljómar heimskulegra en það virtist vera þá stundina) og tróðum því einhverjum töppum ofaní vitlaus göt, og skrúfurnar þar ofaní. Þetta passaði svo engannvegin þannig að ég hringdi í Jóa og sagðist vera búin að klúðra málunum. Hann sagði orðrétt að mig minnir: "Hanna.. ég kem heim kl hálf 11, EKKI snerta skrifborðið!!". Ég hlýddi því auðvitað, settist niður í sófann en ákvað að glugga aaaðeins betur í leiðbeiningarnar. Við nánari skoðun áttaði ég mig á því hvað við höfðum gert vitlaust. Útskýrði það fyrir Aníku og fannst það svo heimskulegt að ég gæti hreinlega ekki sýnt Jóa það. Þannig að ég stóð upp.. gekk að skrifborðinu... tosaði í skrúfurnar (sem voru í vitlausum götum) .... og braut þær!!
Nú voru góð ráð dýr - eiginlega alveg fokdýr þar sem þetta borð kostaði 7000kr.
Jæja. Þetta reddaðist í dag þegar ég keypti bara vinkla og skrúfur, og ætlar JÓI (jább ég kem ekki nálægt svona samsetningum aftur) að skrúfa það saman fyrir mig í kvöld.
Hvað gerði ég án karlmannana í lífi mínu?!
---
Læt þetta blogg nægja í bili, og ætla að fara að koma mér í smá lærdóm.
Rúfus er að fara í smá læknisheimsókn í kvöld þar sem hann er farinn að taka uppá því blessaður að hleypa mér ekki út þegar kalt er í veðri. Sem væri nú svosem ágætt nema það að það er ekkert voðalega þægilegt að sofa í bíl! Hehehe. Vonandi virkar þessi heimsókn og þakka ég velgjörðarmanni mínum kærlega fyrir að nenna að standa í þessu! :)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
Berglind framtíðar msn þulur!:
hehehe já það er víst alveg greinilegt að þú átt ekki að vinna í samsetningum! hehe en þú finnur köllun þína síðar Hanna mín! ég er viss um að þér sé ætlað að vinna öðruvísi starf ií framtíðinni! tökum mig sem dæmi..ég hef nýlega uppgötvað - með hjálp frá vinkonu minni ,sem mun vera ónefnd hér - að uppeldisfræðin er því miður ekki mín grein! heldur ætti ég að verða íþrótta msn þula! já hljómar það ekki vel?? ég er nokkuð viss um að það sé vel borgað!
23.01.08 20:53
geturðu sagt mér afhverju í ósköpunum þú keyptir þér skrifborð í rúmfó þegar ikea er í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá þér? afhverju, hanna?.. afhverju? ég gæfi hvað sem er til að hafa ikea nálægt mér.. ég myndi fórna reglulegum rúmfó-heimsóknum fyrir ikea.. ekkert mál..
..þetta segir þér bara það að rúmfó er.. tjah.. ekki næstum eins gott og ikea.. :) - já, og líka það að sumum er einfaldlega ekki ætlað að setja saman hluti.. annað en ég - sem setti saman heilt rúmfó skrifborð án leiðbeininga ;) klár!
..hvar fær maður svona hugulsaman bíl eins og rúfus?.. sá sem ekki leyfir manni að fara út í frosti er ekkert annað en hugulsamur :)
23.01.08 21:29
SHIT!! ertu að grínast hvað ég hló!! ég er búin að hlæja og hlæja að þessu... þetta er bara fyndið sko :D hahahahaah!
En annars bara takk æðislega fyrir dagin í gær, hann var frábær :D þetta verður klárlega endurtekið.. nema kannski án skrifborðsins!! enda verður það komið saman..
vertu dugleg að læra sæta, á nýja og vel samsetta skrifborðinu þínu! :D
23.01.08 22:44
Kata:
Ég geri ekkert svona sjálf.... þú munt læra um þetta í skólanum.. kallað lært hjálparleysi! Það er þegar karlmenn ákveða að þeir geti ekki skúrað svo þeir gera það bara illa og konur ákveða að geta ekki skipt um dekk..
Um daginn hringdi ég í rafvirkja til að fá hann til að skipta um peru fyrir mig :) góð ha?
24.01.08 12:16
sandra:
oh lord stelpur... ég trúi þessu ekki upp á ykkur.. ég sprengdi dekkið á bílnum mínum í gær og ég skipti um dekk á bílnum mínum í gær.. tek það fram að þetta er 2 tonna, 7 manna fjölskyldubíll (trajet) og ekkert hlaupið að því að skipta en ég gerði það - og sendi svo kallinn að laga dekkið hjehje ;)
24.01.08 12:58
mamma:
Hehehe. sumum er bara ekki ætlað að gera vissa hluti hvort sem það eru konur eða karlar. En kannski er þetta líka í genunum, pabbi þinn hefur aldrei verið lagin við að setja saman svona IKEA eða RL hluti það hefur verið mitt verk :)
24.01.08 15:29
freyja:
Þú hefur líklega ekkert lært á kommóðu-ævintýrinu? Mjög kómískt að það sé hægt að lyfta upp borðplötunni til að komast í efstu skúffuna.
Ég skipti um dekk (á vitörunni, fór létt meðða) og set saman húsgögn, dæli bensíni, mála veggi og losa stíflur.... allt af illri nauðsyn þó, alveg óheyrilega einhleyp.....
Ef ég ætti mann (eða pabba í sama sveitafélagi) þá myndi ég kannski ekki vera svona voðalega sjálfstæð. ;)
24.01.08 20:38



