Fimmtudagur 24. janúar 2008 / 17:28 / Hræðilegt

Klipptu fingur af húsráðanda...
----
Oftar en ekki er talað um "svona fólk" (m.a. í bloggfærslum sem tengjast þessari frétt).
Það má nú samt ekki gleyma því að "svona fólk" eru líka synir, feður, bræður, frændur....
Þannig vill til að þó ég þekki Kristján (Elvis) ekki mjög náið svona persónulega, þekki ég fjölskyldu hans mjög vel. Þau eru virkilega virkilega gott fólk sem þetta ekki skilið. Litlu systkini hans sem fá líklegast að heyra það í skólanum hvað bróðir þeirra sé viðbjóðslegur að gera svona.
---
Því miður er Kristján bara afsprengi af nútíma þjóðfélagi - foreldrar sem vinna alltof mikið og hafa ekki tíma, orku eða getu í að sinna börnunum eins og þau hugsanlega þurfa, Skóli sem kann ekki að tækla hegðunarvandamál, lögregluyfirvöld sem hafa ekki lagalegan rétt til að gera meira í málunum og félagsyfirvöld með ónæg úrræði fyrir vandræðarunglinga.
Þá vill þetta oft enda svona sem er auðvitað hræðilegt fyrir alla sem að málinu koma.
Það er samt ekki bara nóg að loka fólk inni, heldur verður líka að vinna að því að endurhæfa það og gera það að nýtum samfélagsþegnum.
---
Ótrúlegt en satt þá er Kristján góður drengur. Hann hefur bara, því miður, tekið of margar vitlausar beygjur sem leiddu hann þangað sem hann er kominn núna. Vímuefnin héldu fast í hönd hans og halda eflaust enþá.
---
Ég óska honum alls hins besta og vonandi hugsar hann ráð sitt í fangelsinu.
Fjölskyldu hans sendi ég mínar bestu kveðjur.


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

baddy systir:

ég er mjög sammála því að það þarf að vinna að því að endurhæfa þessa einstaklinga sem fara villu vegar og lenda í fangelsi. það er ekki bara nóg að loka þá inni í smá tíma og síðan henda þeim út og þeir lenda í sama farinu aftur af því að þeir kunna í raun ekkert annað. Ég held að þjóðfélagið og stjórnvöld þurfi að taka til í þessum málum sem og svo mörgum öðrum.

24.01.08 17:59


Berglind framtíðar msn þulur!:

Ég vil endilega benda þér á hanna mín, ef þú vissir það þá ekki áður, að þú ert hrikalega góður penni:)og ég er þér innilega sammála um að þetta fólk þarf endurhæfingu. Það dugir engan veginn að henda þeim bara inn í klefa og læsa, því þegar það losnar svo út..hvað gerist þá?

24.01.08 18:38


Nanna:

Hæj nafna! Ég hef nú nokkrum sinnum spjallað við Elvis og hann er virkar rosalega góður strákur! Hann og Helgi voru vinir í barnaskóla og hann kemur alltaf vel fram við Helga, þó svo hann viti að Helgi sé lögga ;) greinilega vinur vina sinna alla vega...

24.01.08 22:12


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín