Mánudagur 14. janúar 2008 / 02:20 / heimkoma og Reykjavíkurför
Jæja. Komin heim frá Danaveldi eftir frábæra viku í faðmi fjölskyldunnar. Ótrúlega gaman að hitta Dagný, Óla og Danna frænda. Æðislegt. Skemmti mér mjög vel og Visakortið kom glóðvolgt heim... eða eiginlega sjóðandi heitt :S Verra fyrir bankareikninginn, frábært fyrir fataskápinn! Hehe
Annars er þetta óvenju langa og óvenju góða jólafrí senn á enda. Á morgun þarf ég að stökkva uppí flugvél og fljúga "heim". Hugsanlega ætla ég að reyna að draga það fram á þriðjudag, en það þýðir að ég missi af fyrsta skóladeginum, sem er þó nánast einungis að taka á móti kennsluáætlunum og hitta kennarana.
Fór í smá jeppaferð í dag - fengum geggjað veður fyrripartinn og sáum hreindýr og allar græjur. Ætla að skella inn nokkrum myndum...
Gellan í jeppanum - með sveppahúfuna "góðu" og "sæta" myndavéla brosið hehe
Rákumst á þennan glæsilega hreindýrahóp, þetta er nú samt ekki allur hópurinn - örugglega hátt í 200 hreindýr þarna saman komin. Ofar á Öxi sáum við svo fleiri hreindýr. Falleg dýr.
Jökull að troðast í gegnum snjóinn
Ætli Ingi sé fastur?? Neeehh það getur ekki verið ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
mamma:
Þið hafið fengið alveg frábært veðu, eins og við í Mývó, allir þar biðja að heilsa.
Það er nú ekkert skemmtilegra fyrir ökumenn svona trillitækja en að vera amk. hálf fastir. :)
Heyrumst síðar koss fá mömmu.
14.01.08 16:23



