Laugardagur 26. janúar 2008 / 14:23 / Gærdagurinn

Ohh það var svo gaman í gær! Dagurinn var eiginlega fullkominn.
Fór í skólann sem var auðvitað yndislegt og æðislegt enda er ég í frábæru námi með æðislegu fólki. Síðan sótti ég Brúnó og fór með hann heim í Mávahlíðina. Tók smá klikker-þjálfun á honum sem hann var nú ekki alveg að meðtaka, en það kemur :)
Síðan dúðaði ég mig upp í snjóbuxur og dúnúlpu og við skelltum okkur til Birkis og Heru. Það er nú eiginlega bara ágætis work-out að labba í þessu færi, dúðuð með 50kg hund sem togar eins og hann fái borgað fyrir það. Ég var með hann fastan utan um mig (s.s. taum sem nær utan um mig og svo í ólina hans) og líka með svona stuttann taum sem ég hélt í. Better be safe then sorry þegar um svona risaeðlu er að ræða.
Við Birkir fórum svo með hundana uppá hitaveitu-tankatún sem er í Holtunum og höfðum fótbolta með í för. Vá. Það sem maður svitnaði við að hlaupa á eftir hundunum, stökkva á þá, veltast um í snjónum, rífa af þeim boltann og dúndra honum eitthvert útí buskann og svo endurtekið svona 100x. Gríðarstuð. Gríðarstemming. Kem með betri myndir af þessu seinna þegar Birkir er búinn að senda mér þær. Vildi samt óska að ég hefði haft Nick með mér. En jæja, hann skemmtir sér í Búðardalnum í snjónum þar.
Eftir þetta ofur-hressandi-útivistardæmi þá nánast hlupum við Brúnó heim í ógeðslegu haglveðri. Ég stökk í sturtu heima meðan Brúnó chillaði með Jóa. Tók mig til og fór í bestu vísindaferð til þessa! Djöfull var gaman. Frábært fólk hjá Persónuvernd sem er greinilega að vinna gott og gjöfult starf í að halda öllum okkar persónuupplýsingum í skefjum hehe.
Ég þakka samt Rósulind fyrir að hafa skutlað mér heim rúmlega 1. Það var eiginlega mjög gott mál. Ég var reyndar vakin 3x í nótt við mjög skemmtileg símtöl. Takk fyrir það! :) - Þótti mjög vænt um þau.
Í dag er svo stefnan tekin á Hlöðuna að ná í heimildir fyrir ritgerðina mína - svo er það bara ritgerðarvinna fram á nótt og á morgun.
Ætlaði að setja inn smá myndir síðan í gær af mér og Brúnó, en netið er eitthvað ooofurhægt núna þannig að það bíður bara betri tíma. (Í kvöld þegar Jói er ekki heima til að downloada hehehe)



Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.

/ Álit

Jóhanna E.:

hæbb
ég er nýbyrjuð að lesa bloggið þitt og vildi bara kvitta fyrir komu minni :) Gaman að lesa það sem þú skrifar! :D
knúús

27.01.08 13:02


Aníka:

hehe.. hljómar bara skemmtilega að fara með hundana eitthvert útí rassgat að kasta bolta og djöflast :D hehe..

þú býður mér með næst þegar þið takið svona túr :D

en verðum í bandi gamla.. gangi þér vel í ritgerðarvinnu :D

27.01.08 23:52


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín