Þriðjudagur 15. janúar 2008 / 23:57 / Er smá stund, bara smá stund?

Ég fór að velta fyrir mér í dag hvernig merkingu við setjum í setningar eins og "Ég kem eftir smá!".. "Hann á heima bara rétt hjá!"... "Það er bara smá stund í matinn!"... og klassískt "Bíddu aðeins!".
Hjá mér er smá stund, stundum heil eilífð. Allavega fyrir þann sem er að bíða. Fyrir mér er "Rétt hjá" er nokkrum húsum fyrir ofan/neðan, "rétt hjá" í USA er hinsvegar nokkrar götur.
"Bíddu aðeins" er samt alltaf stuttur tími, tja eða oftast. Hvenær á ég að mæta, rétt fyrir? okei.. þá kem ég hvað, tuttugu mínútur í? Korter í? Fimm mínútur í?
Tíminn er afstæður. Í Grímsey stóð hann stundum í stað. Jólafríið flaug áfram, en þó ekki framhjá mér sem betur fer. Árin líða furðuhratt - ég man samt eftir því hvað það var hriiikalega langt á milli jóla hérna í denn.
Stundum finnst manni eins og það sé heil eilífð síðan eitthvað gerðist, en samt átti það sér stað í gær. Mér finnst ég vera búin að vera í Reykjavík í nokkra daga - ég flaug hingað í hádeginu.
Ég er samt þakklát fyrir það að tíminn í raun og veru líður. Annað væri frekar fúlt :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

svanhildur:

..ég þoli ekki 'bíddu aðeins..'
..það er vegna þess hversu lágur þolinmæðisstuðull minn er :) - en þetta er mjög góð pæling.. ég get sagt: 'ég kem eftir augnablik' ..og svo líður hálftími..! :)
gangi þér vel í skólanum, sweetpee..
svansa x

16.01.08 10:20


Aníka:

hehe... þetta klassískar bíddu aðeins virkar bara ef maður er að tala í símann og þarf að segja eitt orð við einhvern sem er með manni í herberginu :D hehe...

en ég þoli ekki, kem eftir smá!! þetta smá er ALDREI smá! :D

Annars er ég að fara norður á morgun, þannig að ég get ekki hitt þig þessa helgi.. ég kem samt aftur á sunnudaginn (vonandi alla vega) híhíh :D

16.01.08 12:43


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín