Föstudagur 04. janúar 2008 / 00:13 / Bækur...

Þó ég hafi ekki fengið eina einustu bók í jólagjöf þessi jólin (eins og flest önnur jól, fólk veit líklegast ekki af því að ég er algjör bókaormur) þá naut ég þess alveg í klessu að lesa hinar ýmsu bækur sem Baddý systir fékk, Óli mágur og líka þær sem Baddý tók á bókasafninu.
Ég byrjaði á því að lesa 11 mínútur eftir Paulo Coelho sem fjallar


um suður-Ameríska stelpu sem er leið á lífinu í heimalandinu og vill gera eitthvað meira. Lætur sig dreyma um Evrópu og hversu ljúft líf evrópubúa er. Hún er með brenglaðar hugmyndir um kynlíf og endar sem vændiskona í Austurríki (að mér minnir.. búin að lesa svo mikið að allt er komið í hrærigraut hehe). Þar upplifir hún ýmislegt misjafnt, en þetta er rosalega vel skrifuð bók og fallega farið með annars sorglega sögu.
Næsta bók sem ég tók fyrir var Bergdorf Blondínurnar sem við Baddý keyptum í Fríhöfninni. Ágætt að lesa svona "OMG ég var næstum því búin að hafna boðinu hans Zach í Blablabla-boðið, en Chanel kjóllinn kom sem betur fer áður en ég sagði nei! Ég verð GUÐDÓMLEG i boðinu og vona svo innilega að Audrey komi ekki í eins kjól eins og kom fyrir á góðgerðarsamkomunni á síðasta ári. OMG það var svoooo neyðarlegt!!" bók um ekki neitt áður en maður hellti sér útí mannvonskuna því næst las ég Þúsund bjartar sólir eftir sama höfund og Flugdrekahlauparann, sem ég las í fluginu á leið til Hawaii og mátti hafa mig alla við að halda aftur af tárunum. Ég kláraði Þúsund bjartar sólir á rétt rúmlega einum degi. Þvílíkt bók. Veit ekki hvort ég get sagt eins og í auglýsingunni að hún sé betri en Flugdrekahlauparinn - en hún kemst allavega vel í fótspor hennar. Hafði rosalega mikil áhrif á mig og situr alveg 100% eftir á sálinni sem og hjartanu.
Næst tók við Dætur Kína sem er frásögn frægrar útvarpskonu sem fór að fá fjöldamörg bréf frá nafnlausum konur í Kína sem greindu frá gríðarlega erfiðri ævi. Það sem konurnar í Kína hafa upplifað er ótrúlegt og var þetta einungis brot af öllu því harðræði og kúgun sem þar ríkir gagnvart konum. Ótrúlegar frásagnir
Síðasta bókin sem ég ligg yfir þessa stundina er Harðskafi eftir Arnald. Ég verð að viðurkenna að ég las Kleifarvatn með hálfum hug og varð ekkert alltof hrifin. Harðskafi lofar hinsvegar góðu og eftir nokkra tíma lestur er ég strax hálfnuð.
Hvaða bók ætti ég að lesa næst??

Þessi færsla er skráð í flokknum Bækur. Þar eru 2 færslur.

/ Álit

svansa:

jii.. mig langar að lesa - eitthvað annað en 'um lög og rétt' .. :)
þetta hljómar einstaklega spennandi - og það er vitað mál að danmörk hefur gert þér gott um jólin!
gleðilegt ár, hanna mín :)
svansa xx

05.01.08 17:59


Gunna:

já til hamingju með jólin og takk fyrir mig! :o)

Er hér andvaka í RVK og á flug út aftur á morgun og er einmitt að bagsast yfir því hvað ég eigi að lesa í vélinni! Spurning um Sólirnar bara eða 11 Mínútur!?

Bestu kveðjur norður.. leiðinlegt að það varð ekkert úr frænku-spilakvöldi... svona er þetta.. svo langt á milli húsa stundum, og ótrúlegt hvað tíminn rýkur áfram...

06.01.08 03:54


sandra:

hæbb, gleðilegt nýtt ár..
er að lesa ösku eftir yrsu sigurðardóttir.. hálfnuð og hún er góð..sverrir fékk englar dauðans eftir þráinn bertels og þú mátt fá þær lánaðar þegar við sjáumst næst, hlakka til að sjá þig
risaknús
englabossarnir í rjúpnasölum

06.01.08 18:03


Hófý:

mæli með englar dauðans, var að klára hana í gærkvöldi og hún er þokkalega beitt :) skil alveg núna það sem setndur framan á henni

07.01.08 13:19


Aníka:

hehe.. eina bókin sem ég hef lesið í laaaaaangan tíma var harðskafi, og jeminn, ég hef aldrei lesið jafn mikið á jafn stuttum tíma! :P hehe.. en mér fannst hún ótrúlega góð og sat rosalega eftir! hehe...

en annars bara velkomin heim frá danaveldinu, ég er komin í borgina þannig að við verðum bara í bandi skvísa :D

07.01.08 17:29


Lína:

blessuð!
Ég er sammála með þúsund bjartar sólir, hún er góð og það tekur á sálina að lesa hana. Mér fannst 11 mínútur líka alveg yndisleg, þótt hún væri um vændi þá var hún svo ljúf (þetta hljómar illa, en þú fattar..)
Annars vissi ég ekki að þú værir lestrarhestur, en gaman að því ;)

10.01.08 10:42


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín