Mánudagur 21. janúar 2008 / 01:27 / Að vera stuðningsfjölskylda
Eina helgi í mánuði er ég þess gæfu aðnjótandi að fá til mín 7 ára stúlku með CP (Cerebral Palsy). Hún getur ekki talað, hún labbar voðalega hægt og sjón hennar nær ekki alltaf að sjá misfellur sem á vegi hennar verða. Hún getur hinsvegar bablað, hlegið, knúsað mig og kreist.
Þessar helgar er hún einfaldlega hluti af mínu lífi. Við förum í sund, förum á rúntinn, fáum okkur ís, kíkjum í heimsóknir, matarboð eða bara höngum heima og gerum ekki neitt - saman.
Frá því 2004 hef ég verið með hana í stuðning, einhverfan dreng og unglingsbræður. Allt saman yndisleg börn sem eiga frábærar fjölskyldur.
Eins og alltaf, er mikill skortur á stuðningsfjölskyldum fyrir fötluð börn, börn sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu eða koma frá fjölskyldum sem einfaldlega geta ekki sinnt þeim nægilega vel. Þessi börn þurfa öll á okkur að halda. Þau þarfnast þess að verða hluti af eðlilegu fjölskyldulífi, upplifa eitthvað nýtt, fá hvíld frá dagsins amstri. Ekki má heldur gleyma fjölskyldum barnanna sem hlaða batteríin þær helgar sem börnin eru í fríi að skemmta sér.
Að vera stuðningsfjölskylda þarfnast ekki skattkorts, þú þarft ekki að skila inn tímum og þegar þú fyllir út skattaskýrslu þína ár hvert fylliru út viðeigandi reiti, reiknar út kostnað ofl og er skattur dreginn af þér í ágústmánuði. Ég sjálf ef aldrei, í alvöru, fundið fyrir þessum frádrætti. Það sem ég finn hinsvegar fyrir er gleði. Gleði að hafa kynnst stelpunni "minni". Gleði að þekkja fjölskyldu hennar og allra hinna "barnanna" minna. Gleði að kynnast lífi sem er virkilega frábrugðið mínu "venjulega" og "eðlilega" lífi.
Þetta er ekki flókið. Ein til tvær helgar í mánuði þar sem þið bjóðið annan einstakling velkominn í ykkar líf. Það þarf ekki stranga dagskrá eða stöðuga skemmtun. Oftar en ekki njóta börnin þess best að slappa af - þau eiga líka erfiða vinnuviku að baki eins og við.
Endilega hafið samband við félagssvið bæjarfélagsins ykkar, eða mig, og fáið frekari upplýsingar. Þið munuð ekki sjá eftir því.
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.



