Miðvikudagur 19. desember 2007 / 18:52 / Prófin búin - og það eru að koma jól!!

Ég trúi þessu varla. Bara 5 dagar til jóla. Oh man! Síðasta prófið mitt var í dag, og kláraði ég það á 2klst en ekki 3 eins og gert er ráð fyrir. Ekki það að ég hefði eitthvað verið að klúðra þessu, gat reyndar ekki alveg allt - en gerði mitt besta. Fólk var almennt frekar óánægt með frammistöðu sína og fannst þetta frekar ósanngjarnt próf. En það er alltaf hægt að kenna einhverjum öðrum um. Maður lærir bara eins og maður getur, og vonar síðan það besta :)
Eftir prófið fór ég í jólagjafa-innkaupa-maraþon. Tókst að versla 15 jólagjafir á mettíma. Á samt enþá eftir 4 gjafir sem ég ætla að klára fyrir norðan. Það er pínu skrítið að sitja ein í Mávahlíðinni núna. Undanfarnar 2 vikur hef ég verið stanslaust (í alvöru, uppá hvern einasta dag) með Ólöfu bekkjarsystir og sl viku fór ég heim á Hauganes í Selvík að læra með Ólöfu og Birki. Það var algjör snilld. Rosalega góð ferð sem vonandi borgaði sig (kemur í ljós þegar ég fæ einkunnir!)
Núna er bara efst á dagskrá að pakka í Reykjarvíkurgjöfum, koma sér í sturtu, fara út að chilla og njóta þess að þurfa ekki að læra, og henda sér síðan norður yfir fjöll með flugfélaginu góða og slappa af í faðmi fjölskyldunnar í firðinum fallega :)
Later folks


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.

/ Álit

svansa:

tiiiiil hamingju með prófin!
..oh, tilfinningin er svo góð - að vera búin með þetta :D - já, og takk fyrir síðast :)
sjáumst vonandi um jólin.. var ekki eitthvað tal um hitting hjá hófý? :) hljómar vel!
taa
svansa

19.12.07 20:37


karen besta frænka:

gvvvvvvvvöööööööööððððð hvað ég hlakka til að fá þig heim og knúsa þig og kyssa
sakna þín brjálæðislega

20.12.07 22:08


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín