Sunnudagur 09. desember 2007 / 12:58 / Niðurstöður úr ritgerðinni

Jæja.. hérna fyrir neðan copy-paste/aði ég niðurstöðurnar okkar úr ritgerðinni. Hljómar kannski bjánalega að lesa þær svona beint - en ekki alla ritgerðina, en hugsa að enginn nenni að leggjast yfir 22 bls hérna á netinu hehe :P
Svanhildur - Sakna þín líka!! Og já við þyrftum að hafa hitting! Algjörlega. Hvernig væri að þú kæmir út á Hauganes eftir jólin og við tvær kíkjum til Hófýjar í nýja húsið?!
Allavega, hérna koma niðurstöðurnar:


Sú staðreynd að þau málefni sem við höfum fjallað um í þessari ritgerð hafi lítið eða ekkert verið rannsökuð gefur tilefni til að ætla að niðurstöður okkar sé ekki afgerandi. Það er hæglega hægt að fullyrða að forsendur fyrir fullnægjandi aðstæðum fyrir æskilegan félagsþroska barna og ungmenna sé í raun ábótavant í fámennum skólum sé tekið mið af þeim kenningum og þeim skoðunum sem við nýttumst við sem heimildir og útgangspunkta í þessari ritgerð. Félagsþörf er mismunandi eftir einstaklingum og háð tilfinningum hvers og eins hverju sinni. Að mati þeirra einstaklinga sem halda því fram að fámennir skólar séu jafn góðir og/eða betri en fjölmennir skólar, er þessari þörf fullnægt en eftir á að hyggja liggur okkur við að spurja hvort að skólastjórnendur gefi þessari þörf gaum sem skyldi. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru það börnin sem hinn raunverulegi kviðdómur og þau finna hvort að þörfunum sé mætt. Að greiða götur æskilegs félagþroska er öllum samfélögum til tekna því börn eru já mestu verðmæti hverrar þjóðar. Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að veita börnum á öllu landinu menntun á grunnskólastigi. Í því ljósi undrumst við hversu lítið er talað um þennann þátt grunnskóalmenntunar. Iðulega er talað um pólitískar og landfræðilegar forsendur skólahalds en
félagslegi hlutinn stendur í skugganum. Samt sem áður er það keppikefli menntaðrar þjóða að félagsþroski barna sé ekki ábótavant og því brýnt að skaffa aðstæður sem ýta undir hann í stað þess að halda aftur af honum eða láta hann standa í stað. Talað er um að í fámennum skólum hafi kennarar meiri tíma til að sinna þörfum hvers og eins nemenda útaf fyrir sig. Heimildir sem teknar voru fyrir hafa stutt þá fullyrðingu. Gefum okkur að meiri tími og athyggli frá kennari hafi bæti námsárangur. Það, að barninu gangi betur í skólanum kemur af stað nokkurnskonar snjóboltaáhrifum. Ef því gengur vel í skólanum, líður því betur, þar af leiðandi eykst sjálfstraustið, það fær aukið sjálfsöryggi og sjálfsmyndin styrkist.
Hvort að nemendur eru að missa af einhverju sem í raun og veru skiptir máli er álitamál. Samt sem áður missa þessi börn af því að vinna hópavinnu í stærri hópum, taka þátt í íþrótta-hópastarfi og njóta félagslífs sem stærri skólarnir bjóða uppá. Samkvæmt félagsþroskakenningum eru þessir hlutir mikilvægir í því að æskilegan félagsþroska. Ef litið er á þetta frá kennslufræðilegu sjónarhorni er hægt að benda á það að barn sem alltaf hefur verið í stofu með örfáum öðrum nemendum á hinum ýmsum aldursskeiðum er óvanur því kennsluformi sem á sér stað í framhaldsskólum ef það færi í framhaldsnám seinna meir. Hinsvegar er nauðsynlegt að horfa til þess að börn sem koma úr fámennum skólum hafa þurft að takast á við öðruvísi félagsleg verkefni heldur en börn úr fjölmennum skólum. Í staðinn fyrir að vera umkringd jafnöldrum allan daginn umgangast þau mun frekar börn á öllum aldr og ekki síður fullorðna. Það gerir það að verkum að þau eru hugsanlega betur í stakk búin að takast á við fjölbreytileikann í þjóðfélaginu sem við búum í í dag.

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Hófý:

Já endilega að koma og kíkja á okkur :)

09.12.07 16:17


Gams:

Ég sé eina stafsetningarvillu hehe, þó er ég ekki háskólagenginn :)

10.12.07 14:27


Hanna:

Enda varstu líka í fámennum skóla Gummi minn og einstaklega gáfaður fyrir vikið ;)

10.12.07 17:58


svanhildur:

mér finnst þetta mjög gott niðurlag á ritgerð - ég er vissulega út fámennum skóla líka, sem og lögfræðinemi sem skrifa ritgerð á vikufresti ;) ég veit hvað ég syng! hehe..
annars hljómar smá gettogether heima hjá hófý okkar í nýja húsinu betur en margan grunar! :D ..hvað með að hófý bjóði okkur báðum í árlegan jólamat? haha.. ákveðum það bara hér og nú ;) neeeedjók!
..en hittingur hjá hófý um jólin kemst inn í dagatal mitt! tvær flugur í einu höggi! ;)
ást og friður, hanna mín :)
ást og friður!
svansa

10.12.07 20:48


svanhildur:

ójá.. ég verð líka að koma því að hversu brugðið mér varð þegar ég sá sjálfa mig ávarpaða í blogginu þínu.. :)
óviðbúin svona :)

10.12.07 20:49


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín