Miðvikudagur 05. desember 2007 / 17:43 / Fámennir skólar
Ég er að skrifa, ásamt bekkjarfélaga mínum honum Birki, ritgerð um fámenna skóla (á Íslandi) og áhrif fámennis á félagsþroska barna. Þetta er mjög áhugaverð ritgerð og skemmtilegt að skrifa hana, þó maður sé nú alveg kominn með leið á því að finna heimildir, lesa bækur, merkja við, skrifa niður, þýða, raða saman, endurorða, fara yfir.... blablabla. Þetta kemur samt allt með kaldavatninu krakkar mínir ;) Engar áhyggjur af mér. Hinsvegar finnst mér merkilegt að fámennum skólum fer sífellt fækkandi, og núna síðasta ár voru lagðir niður fjórir fámennir skólar. Fjórir.
Mér finnst það frekar mikið. Síðan 1998 hefur skólum á Íslandi fækkað um 23 og fjölmennasti skóli Íslands telur 801 nemenda. Það finnst mér mikið. Hinsvegar þegar maður skoðar ástæður fyrir því að skólunum er lokað er það yfirleitt vegna þess að samgöngur fara batnandi og þar af leiðandi er auðveldara að keyra börnin yfir í næsta "stóra" skóla. Einnig sameinast sveitafélög (líkt og gerðist með Húsabakkaskóla), en oftast er um að ræða pólitískar ástæður fyrir því.
Ekki enþá hef ég rekist á heimild sem fjallar um það að fámennum skóla sé lokað vegna þess að þeir séu svo "slæmir" fyrir börnin. Hvergi er talað um þau forréttindi sem fylgja því að vera í fámennum skóla, kannski 8 saman í bekk, nægur tími fyrir kennarann að aðstoða hvern þann sem þarf á aðstoð að halda.
Umræður um fámenna skóla virðast oftast snúast um það að halda uppi sérstökum vörnum fyrir þá. Með því er í rauninni verið að gefa í skyn að til sé einhver „rétt” eða „hæfileg” stærð af skóla og nánast sjálfgefið að hver sá skóli sem víkur frá því viðmiði sé ekki nógu góður. Við lifum í svokölluðu borgarasamfélagi, ekki aðeins í þeim skilningi að meirihluti íbúa landsins búi í borgum, heldur einnig í þeim skilningi að hugsunarháttur og gildismat borgarasamfélagsins er ríkjandi í þjóðfélaginu. Þetta gerir það að verkum að allt sem víkur frá viðmiðum borgarasamfélagsins, hvort sem það er skóli eða önnur starfsemi, er sjálfkrafa tortryggilegt.
....
Læt ykkur vita þegar við höfum komist að einhverri niðurstöðu ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Fámennir skólar rokka! Miklu meira næði, meiri tími með kennaranum, persónulegri sambönd við kennara, meiri samstaða o.s.frv..! Í einum skóla á landinu eru tveir nemendur..! Einhvers staðar í Mjóafirði eða eitthvað... :P Það er nú heppilegt að þessir tveir nemendur eru í 5. og 6. bekk en ekki 2. og 10. eða eitthvað! En vá! 801! Í grunnskóla! Það eru fleiri en í MA! Vó sko... Heyrðu, ég er hætt að röfla hérna, við sjáumst bara:)
05.12.07 19:23
Hófý:
mér finnst æði að hafa komist í lítinn skóla svona í lokin!
Mér leið aldrei eins vel í skóla og eftir að ég komst hingað á nesið. Ég held svo bara í vonina um að það verði EKKI búið að leggja árskógarskóla niður þegar kemur að þvi að börnin mín fara í skóla :)
En þú mátt alveg endilega kíkja á okkur þegar þú kemur norður :)
06.12.07 15:01
ég tel það hafa verið forrettindi að klára árskógarskóla með þessum hópi sem við gerðum.. og mér fannst líka alltaf soltið sniðug, hugsunin á bakvið það að fara í dalvíkurskóla í 10unda bekk.. eins og til að venja okkur við áður en við færum í framhaldsskóla :)
jafnvel þó svo að ég haldi ekki miklu sambandi við fólkið sem við menntuðumst með og eyddum leikskólaárunum með líka - þá tel ég það samt vera forrettindi að vita af þeim og þekkja þau eins vel og ég hefði ekki þekkt þau ef við hefðum verið í 25-30 manna bekk, einhverstaðar annarsstaðar..
..og ég sakna þín líka, hanna mín.. síðast þegar ég sá þig var það í grænmetishorninu í nettó og mikið og stórt knús átti sér stað :)
vonandi getum við hittst einhverntíma fljótlega, þó ekki væri nema fyrir annað knús :) - já, eða bekkjarhittingur.. en þú ert vissulega betri að skipuleggja svoleiðis randeivú en ég.. ég er svo bissy :)
vona að þér gangi vel í skólanum, snúllan mín!
hlakka til að vita af þér hér fyrir norðan!
knús,
svansa xx
07.12.07 13:50



