Sunnudagur 23. desember 2007 / 20:13 / Árið 2007

Mig langar til að fara smávegis yfir árið 2007 hérna inná síðunni minni, jafnvel þó það sé ekki nema bara fyrir sjálfan mig. Árið í ár var nefninlega alveg einstaklega viðburðarríkt.


Það byrjaði með pompi og prakt á Grenivík, nánar tiltekið í Melgötu 10. Svaka stuð þar eins og öll árin á undan. Við Þorsteinn vorum á fullu að ala upp Nick-inn okkar. Gekk nú svona frekar brösulega :) Kom einu sinni að honum með ostaskerann og klósettbustann í fanginu.. liggjandi í gluggakistunni inní stofu! ;) Gaman að honum samt sem áður. Í Janúar fór ég að vinna á Krummafæti með yndislegum börnum og yndislegu starfsfólki. Í apríl hættum við Þorsteinn saman og var það auðvitað ekki eitt af gleðiefnum ársins svona til að byrja með. Núna erum við hinsvegar bæði alveg afskaplega hamingjusöm og ég óska Þorsteini og Gerðu alls hins besta í Snægilinu. Ógleymanleg ferð til Ólafsvíkur var farin í lok apríl/byrjun maí þar sem við Inga brilleruðum algjörlega og ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel! Takk elsku Inga mín fyrir frááábæra innanlands-ferð :D
Í maí fékk ég vinnu á sambýli á Akureyri, en hafnaði henni þegar mér var boðið að fara alla leið til Grímseyjar að vinna þar. Besta ákvörðun sem ég hef tekið lengi. Þar tók við virkilega skemmtilegt sumar þar sem segja má að hver dagur hafi verið ævintýri. Þegar ég var nýkomin til Grímseyjar lést Hulda amma mín. Það var afskaplega sorglegt og erfitt, en eitthvað sem maður vissi alveg að væri að fara að gerast þannig að maður reyndi að taka því með stóískri ró og minnast allra góðu stundanna niðri í Ásbyrgi hjá Ömmu.
Í Grímsey vann ég á veitingastaðum Kríunni og þjónaði til borðs ásamt því að elda dýrindis máltíðir :) Einnig afgreiddi ég fulla Grímseyinga sem flestir vildu bjór eða Captein í kók :P Gaman að'essu. 07.07 gifti Aníka vinkona mín sig honum Helga sínum eftirminnilega í Möðruvallakirkju. Athöfnin var virkilega falleg og við Helga sátum saman og þurrkuðum tárin til skiptis. Virkilega falleg athöfn og frábær veisla! Takk fyrir mig Aníka mín!
Í lok Júlí byrjaði ég svo með samveru stundir í Grímsey fyrir krakka á aldrinum þriggja til átta ára. Það var mikið sprellað, föndrað, sungið og haft gaman á annars alltof stuttum tíma. Hressir krakkar með hlutina á hreinu og voru meira en lítið tilbúin í svona "skóla".
En sumarið leið (stundum of hægt, stundum of fljótt) og áður en ég vissi var ég haldin af stað heim á leið...til þess eins að pakka suður, fylla Rúfus af dóti og flýja suður yfir land. Háskóli Íslands beið mín - sem og Jói meðleigjandi :) Skólinn gekk prýðilega, samlífið okkar Jóa líka og við vorum voðalega dugleg að elda og bralla ýmislegt saman þangað til leið á önnina og maður kaffærðist í verkefnavinnu, ritgerðarvinnu og prófalestri. Ég var dugleg að fara út að skokka með hina ýmsu hunda, þó aðallega Brúnó. Kíkti smá í Boot-Camp með Söndru (það var virkilega gaman) og endaði síðan líkamsræktarferilinn á þessu ári með leikfimisstundum í Laugardalsgrunnskólanum (veit ekkert hvað hann heitir) með Fríðu vinkonu minni. Vonandi heldur sú leikfimi áfram eftir áramót enda góður hópur þar á ferð og skemmtilegur kennari.
---
Segja má að þetta ár hafa svo sannarlega einkennst af breytingum. Búin að kynnast fullt af nýju fólki, eignast margar nýja og góða vini, en samt þurft að kveðja ýmsa sem erfitt hefur verið að segja bless við. Jóhann Valdimar æskuvinur minn kvaddi okkur í lok nóvember. Ég votta fjölskyldu hans og vinum innilega samúð mína.
Enn aðrir hafa kvatt án þess að fara nokkuð. Ég átti einu sinni samræður við Dagný systir um þetta, þó hún muni vafalaust ekkert eftir þessu samtali. Suma vini er manni ætlað að eiga alla ævi - aðrir koma og fara og þannig er það einfaldlega. Það þýðir samt ekki að þeir séu eitthvað verri vinir fyrir vikið. Allt tekur enda, og þannig er það stundum með vináttuna líka. Ég er þó virkilega heppin að eiga góðan og traustan vinkonu hóp sem hefur fylgt mér frá fæðingu (T.d. Damma) eða frá því að ég byrjaði í leikskóla (Inga Rut). Frændur mínir á Hauganesinu hafa alltaf reynst mér vel og er ég þakklátt fyrir alla þá sem hafa fylgt mér í gegnum tíðina, árið 2007 sem og öll árin þar á undan.
Ég veit ekki hvort ég sé hamingjusamari núna í lok ársins, eða við byrjun þess. Ætli það megi ekki segja að ég sé jafn hamingjusöm - en á annan hátt. Núna lifi ég fyrir sjálfa mig, hef ekki áhyggjur af neinu nema sjálfri mér, nýt hverrar mínútu sem ég hef með þeim sem ég elska og nýt þess að vera ég sjálf.
----
Gleðileg jól kæru vinir, nær og fjær - þetta er jólakortið í ár!

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Guðrún Veiga og familí :-):

Gleðileg jólin elsku Hanna. Takk fyrir frábæra skemmtun á jólahlaðborðinu, verst að leiðir skildu aðeins of snemma sökun þess að sumir fóru aaaðeins of hratt inn um gleðinnar dyr, *hóst* :-)

Vona að þú gerir þér leið hingað á austurlandið sem allra fyrst, það yrði ógurlega gaman að sjá þig!

Knús

-Guðrún Veiga, Gummi & Valur Elí.

24.12.07 13:07


svanhildur:

Gleðileg Jól, elsku Hanna mín!
Ég vona að komandi ár verði eins gott, ef ekki betra, og árið sem er að líða..

mundu bara að án sorgar þekkjum við ekki hamingju :) - sumum er ætlaðir aðrir hlutir en þeir sem þeim eru úthlutaðir í fyrsta skipti - jói frændi er án efa að sinna sínu rétta hlutskipti á mun betri stað :)

eigðu frábær jól og áramót, elsku Hanna - og vonandi sjáumst við eitthvað á sprellinu :)

þín vinkona, Svanhildur xx

24.12.07 14:03


Hófý:

Gleðileg jól!
Vona að ég fái eitthvað að sjá þig yfir hátíðarnar :) það er nú ekkert svo ofboðslega langt á milli okkar :P

kv úr Klapparstígnum :D

25.12.07 19:14


Guðný:

Gleðileg jól Hanna mín, fallegt blogg hjá þér! Vona að þú hafir það gott um jól og áramót, við verðum nú að hittast eitthvað á árinu semn senn gengur í garð :) Þetta er mitt jólakort ;)

Kyss og knús

Guðný

25.12.07 21:01


BJarney:

Gleðileg jól Hanna mín, fallegur pistill hjá þér, alltaf jafn góður penni:)

og mikið var nú gaman að hitta þig í gær:)

Jólaknús og vonandi sé ég þig aftur sem fyrst:)

27.12.07 18:42


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín