Þriðjudagur 06. nóvember 2007 / 12:22 / Ó ljúfa líf

Ég elska Akureyri. Eiginlega elska ég alla "litla" staði sem eru ekki yfirfullir af bílum og fólki. Elska litla staði þar sem maður þekkir svo marga, er heilsað útá götu, veit hvar allt er, kann matseðlana á veitingarstöðunum nánast utan af, hefur nægan tíma fyrir vini og vandamenn (því það tekur ekki klst að keyra á milli staða), næg afþreying fyrir börn, góðar sundlaugar... allt til alls :)
Ég hafði það svo gott fyrir norðan. Þetta var æðisleg helgi svo það sé vægt til orða tekið. Alveg frábær. Þegar ég kíkti út á föstudagskvöldið með Helgu og Binna hitti ég Ingu mína, Elvu Ýr, Aníku og Helga! Gunnar Njál, Lalla... gæti lengi talað. Hitti líka Söndru vinkonu sem ég er ekki búin að hitta í... já.. sex ár! Það var ekkert smá gaman að sjá hana.
Á leiðinni suður aftur sat ég svo nánast við hliðiná Þóru ma-systir (hún var hinu megin við ganginn) og fylgdi einni 4ra ára skvísu suður til mömmu sinnar. Hún var ekkert flughrædd þó að vélin hristist MJÖG mikið og aðrir í kringum mann hafi verið orðnir freeekar hvítir/grænir í framan.
Jæja..
Nenni ekki að skrifa mikið meira um þessa ferð. Bara takk fyrir að gera hana ógleymanlega!
p.s. engar myndir í þetta skiptið þar sem ég á ekki myndasíma né myndavél! buhuhu


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

Aníka:

hehe.. gaman að hitta þig sömuleiðis!! ég var ekkert hissa þegar ég sá þig í hádeginu á föstudaginn! :D hehe...

verðum í banski skvísa! :D

06.11.07 14:49


Inga Rut:

já það var rosalega gaman að hitta þig um helgina músin mín.. þig og CO. hehehhe :D
hef alveg verið hressari en á laugardaginn... varr ennþa´ælandi aðfaranótt mánudags eftir ælu helgi dauðans! sjetturinn!! neita því samt alfarið að jager í magic úr brúsa hafi farið svona með mig og að þetta hafi verið þynka! ó nei hósei! hehehe
skemmti mér annars rosa vel, hefði viljað sjá í skottið á þér áður en þú fórst.. en koma tímar ;) riiiight?? ;)

06.11.07 15:05


sandra:

hæ hanna mín
gott að fá þig aftur suður, þarf greinilga að vinna aðeins í þessari norðurþrá hjá þér hehe
ætlaði að benda þér á ljósu punktana við að vera myndasíma og myndavélalaus.... þá eru þínir nánustu laus við höfuðverkin af að finna jólagjöf og geta nú gefið þér bæði nýjan síma og myndavél ;) jeyj...
hlakka til að sjá þig.. í allra síðasta lagi næsta laugardag.. þarf að heyra í þér aðeins líka..

06.11.07 16:45


Bjarni Ey:

Þú ættir að sækja um starf sem kynningarfulltrúi hjá Akureyri. Vantaði bara: Akureyri öll lífsins gæði.

12.11.07 15:00


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín